Kvöldfréttir

Morðdómur, fangaklefar, verkfall flugumferðastjóra og málefni RÚV

6. desember 2023

Tæplega fertugur maður var í dag dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir myrða meðleigjanda sinn í Hafnarfirði í sumar. Verjandi hans gerir ráð fyrir dómnum verði áfrýjað.

Umboðsmaður Alþingis gerir alvarlegar athugasemdir við fangageymslur Lögreglunnar á Suðurlandi og vörslu þeirra sem þær gista. Dómsmálaráðherra er beðinn meta hvort húsnæðið uppfylli kröfur til starfseminnar.

Flugumferðastjórar hafa boðað vinnustöðvun tvo morgna í næstu viku, sem mun óbreyttu leiða til mikillar röskunar á flugi. Arnar Hjálmarsson, formaður félags flugumferðastjóra, segir viðræður við SA og Isavia ekki hafa verið markvissar til þessa.

Starfshópur menningar- og viðskiptaráðherra hefur skilað drögum skýrslu um málefni Ríkisútvarpsins, sem fjallar meðal annars um umsvif RÚV á auglýsingamarkaði.

Google kynnti í dag nýtt gervigreindarlíkan, sem sagt er geta sýnt fram á framsækna rökhugsun á fjölbreytta vegu og standa öðrum svipuðum forritum framar flestu leyti,

Og kærleikskúla ársins var afhent í dag - hana fékk Haraldur Þorleifsson, sem þakkaði kærlega fyrir sig.

Frumflutt

6. des. 2023

Aðgengilegt til

5. des. 2024
Kvöldfréttir

Kvöldfréttir

Kvöldfréttir útvarps

Þættir

,