Kvöldfréttir

Álag á Landspítala, kjaraviðræður, Ísrael og jólavenjur

4. janúar 2024

Mikið álag og veikindi starfsfólks Landspítala bitna á sjúklingum. Þetta segir Ellen Calmon, eiginkona manns sem þurfti bíða lengi eftir aðstoð á bráðamóttöku spítalans í gær.

Hópur nafntogaðra Ísraelsmanna sakar dómsmálayfirvöld í Ísrael um hunsa skýra hvatningu þarlendra ráðamanna til þjóðarmorðs og þjóðernishreinsana á Gaza.

Stjórnvöld hafa boðað forsvarsfólk verkalýðshreyfingarinnar til fundar í hádeginu á morgun. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins segir lítið bera í milli í viðræðum við atvinnurekendur.

Verð á heitu vatni í Vestmannaeyjum hefur hækkað tvisvar á fjórum mánuðum. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri segir þetta koma illa við Eyjamenn.

Íslensk uppsjávarskip eru flest ýmist farin til kolmunnaveiða við Færeyjar, eða á leið þangað. Garðar Svavarsson skipstjóri segir kolmunnaveiðarnar verða helsta verkefni uppsjávarflotans þar til í ljós kemur, hvort veiða loðnu eða ekki.

Réttarhöldum í Samherjamálinu í Namibíu hefur enn verið frestað, vegna kröfu um dómarinn í málinu víki sæti.

Og jólavenjur landsmanna eru flestu leyti svipaðar og síðustu ár. Þó hefur þeim fækkað sem senda jólakort, baka smákökur og fara til messu.

Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Markús Hjaltason

Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir

Frumflutt

4. jan. 2024

Aðgengilegt til

3. jan. 2025
Kvöldfréttir

Kvöldfréttir

Kvöldfréttir útvarps

Þættir

,