Heimskviður

Sumar-Heimskviður - Sjónvarp

Við ætlum huga sjónvarpinu í dag, þegar við höldum áfram rifja upp brot frá liðnum Heimskviðuvetri. Við byrjum á einum vinsælustu og kannski óvæntustu þáttum ársins, Heated Rivalry. Þessi fremur ódýra framleiðsla á sjónvarpsþáttunum sex borgaði sig svo um munar. Aðalleikararnir tveir eru orðnir stórstjörnur, annar þeirra var gestgjafi í Saturday Night Live síðar í mánuðunum. Þeir voru meðal kyndilbera á vetrarólympíuleikunum og hafa dúkkað upp á öllum helstu rauðu dreglum ársins. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir segir okkur allt um þættina vinsælu og áhrifin sem þeir hafa haft.

Það bárust fregnir af því fyrir áramót sjónvarps og tónlistarstöðin góðkunna MTV væri leggja upp laupana. Það er ekki alveg satt, en MTV er ekki svipur hjá sjón miðað við umfang og stöðu sem stöðin hafði eftir hún var stofnuð árið 1981. Birta Björnsdóttir skoðaði sögu MTV og hvaða áhrif hún hafði á tónlistar- og kvikmyndaiðnaðinn

Birt

25. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,