Heimskviður

169 - Íþróttaþvætti Sádi Araba og kosningaeftirlit ÖSE

Yfirvöld í einræðisríkinu Sádi-Arabíu eru sökuð um íþróttaþvætti (sportswashing á ensku) með því setja fjármuni í íþróttir víða um heim til bæta ímynd sína. Þetta hefur víða heppnast vel frá þeirra sjónarhóli. Eitt dæmi um þetta er síðasta sumar komu margir af bestu knattspyrnumönnum heims í lið í sádiarabísku deildinni gegn himinháum launum. tilraun virðist ekki ganga vel og farið er bera á ósætti og jafnvel brotthvarfi leikmanna. Hallgrímur Indriðason skoðar ástæðurnar fyrir því, og hvaða áhrif það hefur.

Meira en helmingur af heimsbyggðinni gengur kjörborðinu á þessu ári, rúmlega fjórir milljarðar manna. En þrátt fyrir það á lýðræðið mjög undir högg sækja, því víða er ekki gert nóg til tryggja frjálsar og sanngjarnar kosningar. Kjördagur er bara toppurinn á ísjakanum, fyrir þau sem fylgjast með og hafa eftirlit með kosningum í aðildarríkjum ÖSE - Öryggis og samvinnustofnunar Evrópu. Þetta eru þau sammála um, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrum yfirmaður hjá ÖSE, og Albert Jónsson, fyrrum sendiherra í þessari umfjöllun Björns Malmquist. Undanfarin ár hafa þau bæði leitt hópa sérfræðinga sem aðildarríki samtakanna hafa boðið koma og meta undirbúning og framkvæmd kosninga, en ekki síður hvort stjórnvöld í viðkomandi ríki sjái til þess stjórnmálaflokkar hafi jöfn tækifæri til koma sínum málstað á framfæri; hvort kjósendur hafi forsendur til taka upplýsta ákvörðun. Með öðrum orðum: hvort lýðræðið virkar.

Frumflutt

27. jan. 2024

Aðgengilegt til

27. jan. 2025
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,