Heimskviður

Sumar-Heimskviður - Sala Palomu

Við höldum áfram með Sumar-Heimskviðurnar og rifjum upp mál frá liðnum vetri og þátturinn í dag er helgaður einu máli. Það er saga Palomu, sem við getum líklega ekki kallað annað en harmsögu. Paloma Shemirani, frá suðausturhluta Bretlands, var aðeins 23 ára þegar hún lést úr eitilfrumukrabbameini í fyrrasumar. Þegar hún greindist sjö mánuðum áður, voru taldar 80% líkur á hún næði fullum bata með lyfjameðferð.

Móðir hennar, Kate Shemirani, er þekkt í Bretlandi. Hún missti leyfi sitt sem hjúkrunarfræðingur í kórónuveirufaraldrinum fyrir dreifa skaðlegum upplýsingum um Covid-19. Kate Shemirani tókst sannfæra dóttur sína um hafna lyfjameðferð og gangast frekar undir óvísindalegar meðferðir skottulækna. Hún tapaði því baráttu sinni við meinið. Dánardómstjóri í Bretlandi segir umsjá Kate Shemirani yfir dóttur sinni ófullnægjandi og skammarlega, en ekki glæpsamlega. Bróðir Palomu er ósáttur við niðurstöðuna.

Í viðtali við Odd Þórðarson segir bróðirinn, sem heitir Gabriel, hann kenni móður þeirra um andlát systur sinnar. Mamma þeirra hafi á grundvelli samsæriskenninga og vantrúar á heilbrigðiskerfið, sannfært hana um hafna lyfjameðferð.

Birt

11. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,