Heimskviður

253 - Kosningar í Ungverjalandi. manntal á Indlandi og saga JFK yngri

Það er kjördagur í Ungverjalandi á morgun en þá fara fram einar mest spennandi kosningar í Evrópu í langan tíma. Viktor Orban, sem hefur verið við völd í 16 ár, mælist með minna fylgi samkvæmt könnunum, og Peter Magyar, sem býður sig fram gegn honum gæti orðið næsti forsætisráðherra. Við heyrum frá Birni Malmquist sem er í Búdapest. Hann segir þar mikil bjartsýni fyrir sigri Peters Magyar, sem er kannski ekkert skrítið, hann mælist með meira fylgi í könnunum en meirihluti Ungverja býr í sveitum og smærri borgum og þar nýtur Orban mikillar hylli. En Magyar í borgunum. Og hann þarf vinna stóran sigur til þess leggja Orban og meirihluta í þinginu, og það er svo sem líklegt núna hann vinni kosningarnar, en Orban hefur gert miklar breytingar á kosningakerfinu og vægi atkvæða, og það verður því teljast ólíklegt fleiri atkvæði dugi til þess vinna kosningarnar og koma Orban frá. Sigurinn þarf vera svo stór.

Eitt flóknasta og umfangsmesta manntal sögunnar hófst á dögunum. á telja indversku þjóðina. Þrjár milljónir starfa við framkvæmdina, þetta eru 33 spurningar sem verða lagðar fyrir rúman milljarð landsmanna. Í fyrsta sinn í heila öld er fólk einnig skráð eftir stétt í hinu mjög svo stéttskipta Indlandi. Birta kynnti sér málið.

Heimsbyggðin virðist enn vera hugfangin af Kennedy-fjölskyldunni, þrátt fyrir rúmlega sextíu ár séu síðan John F. Kennedy Bandaríkjaforseti var skotinn til bana. Til marks um áhrif Kennedy-fjölskyldunnar innan bandarískra stjórnmála geta þess frá 1947, þegar John F. Kennedy var fyrst kjörinn á þing, og þar til 2011 gengdi minnsta kosti einn meðlimur Kennedy-fjölskyldunnar kjörnu embætti á alríkisstigi á ári hverju. eru þættir um örlög sonar hans og nafna mikið í umræðunni. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir hellti sér í sögu Kennedy-fjölskyldunnar.

Birt

11. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,