Heimskviður

258 - Styr um Starmer, fjölþáttaógnir og þjóðvegur 66

Það er kjördagur og Heimskviður fjalla um samgöngumál, húsnæðismál og þjóðfélagsumræðuna, reyndar með sínu nefi.

Allra augu eru á Downingstræti 10 þessa dagana. Þetta hefur verið erfið vika hjá Keir Starmer forsætisráðherra Breta, og margir sem spá því hann verði ekki langlífur í embætti. Ég ætla aðeins skoða hvers vegna hann er svona óvinsæll og hvað taki við.

Kjördagur í dag og annar dagur síðar í sumar þar sem landsmenn þurfa gera upp hug sinn og nýta kosningaréttinn. Það er raunhæft óttast tilraunir utanaðkomandi aðila til hafa áhrif á þjóðmálaumræðuna hér á landi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við Evrópusambandið. Þetta segja sérfræðingar sem fást við upplýsingaóreiðu og svokallaðar fjölþáttaógnir - sem eru sífellt stærri hluti af því sem öryggisstofnanir fást við. Ógnir af þessu tagi eru hins vegar daglegt brauð í ríkjum sem standa okkur tiltölulega nærri; til dæmis í Noregi - og Eistlandi - þangað sem Björn Malmquist ætlar fara með okkur í Heimskviðum í dag.

Síðar á þessu ári verður hinn goðsagnarkenndi þjóðvegur 66 í Bandarikjunum hundrað ára og tímamótanna minnst með ýmsum hætti. Það alveg halda því fram hluti sögu Bandaríkjanna liggi í malbikinu á þessum 4000 km vegi sem liggur þvert yfir landið. Birta skoðaði sögu þessa líklega þekktasta þjóðvegar heims, sem lifir meira á fornri frægð en sem samgönguæðin sem honum var upphaflega ætlað vera.

Birt

16. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,