Heimskviður

248 - Saga og samfélagið í Íran og flóttamenn þá og nú

Íran er daglega í fréttum eftir Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á landið fyrir viku síðan. Írönsk kona sem flúði heimalandið og hefur búið á Íslandi í fjögur ár segist vona Íranar í Íran öðlist frelsi og frið og þeir geti gengið til frjálsra kosninga. Fólk óski þess eftir harðstjórn klerkastjórnarinnar síðustu tæplega 40 ár. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir heyrði sögu hennar.

Það eru tíu ár um þessar mundir frá því bylgja flóttafólks skall á ströndum og landamærum ríkja Evrópu; hundruð þúsunda voru þá á flótta frá borgarastríðinu í Sýrlandi og ógnarstjórn í öðrum ríkjum í leit öryggi og betra lífi í Evrópu. Í mörgum ríkjum Evrópu hefur dregið úr samúð almennings með flóttafólki. Koma þeirra er talin vera ein af höfuðástæðum þess vinsældir harðlínuflokka til hægri hafa aukist á undanförnum árum. Björn Malmquist skoðar þessa sögu með atburði vikunnar til hliðsjónar.

Birt

7. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,