Heimskviður

82 | Drónaárásir Bandaríkjahers og arfleið Colins Powell

Stríðið gegn hryðjuverkum sem George W. Bush lýsti yfir í kjölfar hryðjuverkaárásanna þann 11. september 2001 hefur gengið forseta á milli alla tíð síðan. Drónahernaður hefur gegnt lykilhlutverki í því stríði. Hundruð almennra borgara hafa verið drepin í drónaárásum Bandaríkjahers, árásum sem herinn hefur oft reynt afneita þar til rannsóknarblaðamenn hafa leitt sannleikann í ljós. Ólöf Ragnarsdóttir fjallar um málið í Heimskviðum í dag.

Colin Powell, fyrrum utanríkisráðherra lést af völdum Covid-19 í síðustu viku, 84 ára aldri. Powell var utanríkissráðherra í síðari ríkisstjórn George W. Bush og var fyrsti svarti bandaríkjamaðurinn til gegna embætti utanríkisráðherra. En fer sagan mildum höndum um arfleið Powells, sem var við völd þegar Bandaríkin réðust inn í Írak? Guðmundur Björn leitast við svara þeirri spurningu.

Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Birt

23. okt. 2021

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,