Heimskviður

166| Samningaborðið á COP28 og Úkraínumenn breyta jólunum

Heimskviður hefja leika í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, í Dubai þar sem COP28 stendur sem hæst. Og hún á verða ráðstefna aðgerða, svo þau markmið sem sett hafa verið í loftslagsmálum síðustu ár náist. En er það yfir höfuð hægt? Erum við ef til vill orðin of sein grípa í taumana? Þau sem eru við samningaborðið í Dubai telja svo ekki. Og eru reyndar mörg hver á því lokasamþykktin gæti orðið söguleg, takist koma inn ákvæði um framtíð jarðefnaeldsneytis - olíu og gass. Þar til fyrir aðeins örfáaum árum þögðu samningamenn þunnu hljóði á COP-ráðstefnum um áhrif jarðefnaeldsneytis. En er hægt taka nokkuð mark á því sem þarna gerist? Loftslagsráðstefna í olíuríkinu Sameinuðu arabísku furstadæmunum hljómar eins og grín. Mörgum er reyndar ekki hlátur í huga og segja grafalvarlegt svo mikilvæg ráðstefna haldin á viðlíka stað. Svo ekki minnst á manninn sem fer fyrir öllu klabbinu: Soldán sem gegnir framkvæmdastjórastöðu í ríkisolíufyrirtæki Abu Dhabi. Gagnaleki skömmu fyrir ráðstefnuna þótti sýna gestgjafarnir hefðu aðrar meiningar með gestgjafahlutverkinu en berjast gegn loftslagsvánni.

Oddur Þórðarson ætlar með okkur samningaborðinu í Dubai.

Svo hugum við jólahaldi í Úkraínu. Það hefur eðli málsins samkvæmt ótalmargt breyst í Úkraínu eftir innrás Rússa og þar á meðal jólin. Úkraínumenn vilja losa sig við allar hefðir sem tengjast Rússlandi og því verða jólin í ár og framvegis haldin 25. desember en ekki 7. janúar líkt og tíðkast í Rússlandi og hafði lengi tíðkast í Úkraínu. Dagný Hulda Erlendsdóttir kynnti sér málin og ræddi við Úkraínumenn í Kyiv og hér á Íslandi.

Umsjónarmenn þáttarins eru Birta BJörnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Frumflutt

9. des. 2023

Aðgengilegt til

9. des. 2024
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,