Heimskviður

79 | Kúbverjar vilja breytingar og er hetjan frá Rúanda skúrkur?

Í upphafsþætti haustsins höldum við Kúbu og Rúanda.

Þann ellefta júlí síðastliðinn braust út röð mótmæla á eyjunni Kúbu, en þar eru mótmæli almennings gegn stjórnvöldum fátið. Frá árinu 1959 hafa kommúnistar verið við völd á Kúbu og hvers kyns andóf gegn stjórnvöldum kyrfilega barið niður. Kúba er eins og tímavél, fátt hefur breyst eftir þeir Fidel Castro og Che Geuvara komstu valda eftir byltinguna á sjötta áratugnum og tíminn virðist standa í stað. En tímarnir breytast samt og mennirnir með. Með tilkomu internetsins og snjalltækni er Kúba breytast og svo virðist sem langþreyttur almenningur þori loks bjóða stjórnvöldum byrginn. Guðmundu Björn ræðir við Alberto Borges Moreno, Kúbverja sem man tímanna tvenna.

Þá fjöllum við um Paul Rusesabagina. Hetjuleg framganga hans á hörmungartímum þjóðar hans, Rúanda, varð hráefni í Hollywood-myndina Hotel Rwanda. Hann var á mánudaginn var dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir hryðjuverkastarfsemi. Sjálfur segist hann fórnarlamb pólitískra ofsókna, aðrir segja hann sannarlega bara ábyrgð á árásum vopnaðra andspyrnuhrefinga sem hafa kostað níu mannslíf. Birta fjallar um þessi forvitnilegu réttarhöld.

Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Frumflutt

2. okt. 2021

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,