Heimskviður

Sumar-Heimskviður - Fréttaljósmyndir og framtíð fjölmiðla

World Press Photo fögnuðu 70 ára afmæli í fyrra og samtökin fóru í naflaskoðun í tilefni tímamótana. Við ræddum við Joumana El Zein Khoury, framkvæmdastjóra World Press Photo, fyrr í vetur. Við rifjum upp eftirminnilegustu fréttaljósmyndir sögunnar. Myndir sem breyttu heiminum.

Svo eru það möguleg endalok almannaþjónustumiðla í Bandaríkjunum. Það er stefna bandaríkjastjórnar draga úr umfangi þessara miðla sem reka staðbundnar útvarps- og sjónvarpsstöðvar um öll Bandaríkin. Núna séu komnir fjöldi sjálfstæðra miðla og það ekki aðeins úrelt fyrirkomulag ríkið fjármagni miðlana heldur spilli það fyrir sjálfstæðri blaðamennsku. Hallgrímir Indriðason vann þessa umfjöllun í febrúar og ræddi við Ingibjörgu Þórðardóttur sem er fyrrverandi fréttastjóri BBC og CNN í Bandaríkjunum. Hún sagði umræðuna um ríkismiðlar hafi of mikil áhrif á fjölmiðlamarkaðinn góða og gilda en hún eigi ekki við Bandaríkjunum. Almannaþjónustumiðlarnir, NPR og PBS, eigi ekki roð í stærstu einkamiðlana og hvarf þeirra hefði lítil eða engin áhrif á þá. En það myndi hins vegar gera fjölmiðlalandslandslagið bæði einhæfara og fátæklegra.

Birt

27. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,