Heimskviður

Sumar-Heimskviður - Morð

Fjöldi ungverskra kvenna tók upp á því eitra fyrir eiginmönnum sínum með afleiðingum yfir þrjú hundruð manns dóu. Höfuðpaurinn var ljósmóðir sem jafnan var kölluð Súsí frænka. Í störfum sínum kynntist hún vel aðstæðum fólks sem oft voru nöturlegar. Hún útvegaði konum því eitur og leiðbeindi þeim. Margir eiginmannanna í þorpinu beittu konur sínar ofbeldi og þær sáu enga aðra leið úr viðjum þess. Ástæðan fyrir því við fjöllum um málið í vetur er nýlega kom út bók þessa voveiflegu atburði í byrjun síðustu aldar. Bókin heitir The Women Are Not Fine, eða konurnar hafa það ekki gott. Dagný Hulda Erlendsdóttir talaði við höfund bókarinnir og hún segir karlarnir hafi síður en svo haft það gott heldur. En voru konurnar kaldrifjaðir morðingjar eða þolendur ofbeldis sem í örvæntingu sinni fundu ekki aðra leið út?

Bók og glæpir fortíðar er sömuleiðis útgangspunkturinn í seinni umfjöllun dagsins. Þá ætlum við huga geðheilsu þeirra sem fremja voðaverk. Kveikjan er bók sem kom út 2013 sem lýsir sambandi geðlæknisins Douglas M. Kelley við Hermann Göring sem honum var gert meta í aðdraganda Nuremberg réttarhaldanna. Saga sem er búið gera bíómynd um. Birta Björnsdóttir fjallar um málið.

Birt

22. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,