Heimskviður

Sumar-Heimskviður - Íþróttir

Sumarið hefur líklega farið í áhorf á heimsmeistaramótið í fótbolta hjá mörgum og því fannst okkur við hæfi helga þennan þátt íþróttum. Úrslitaleikurinn er á morgun og þá er hægt stytta sér stundir með því til dæmis velta því fyrir sér af hverju Kínverjar eru ekki betri í fótbolta en raun ber vitni.

Það er áhugavert fjögur af fimm fjölmennustu ríkjum heims taka ekki þátt í HM, Indland, Indónesía, Pakistan og Kína. Þrátt fyrir hinn annálaði fótboltaáhugamaður og forseti landsins, Xi Jinping, hafi sett ævintýralegar fjárhæðir í byggja fótboltaskóla, fótboltavelli, þjálfa upp stjórstjörnur heima við og flytja þær inn sömuleiðis til spila í ört stækkandi efstu deild kínverska boltans, þá er Kína hvergi nærri háleitum markmiðum sínum. Sem eru komast á HM karla í fótbolta, halda mótið og vinna það allt fyrir árið 2050.

Eða það eru yfirlýstu markmiðin. Vafalaust vakir sömuleiðis fyrir forsetanum gera Kína meira gildandi í allri pólitíkinni í kringum fótboltann. Eins og Sádar og Katarar hafa gert með glimrandi árangri. En hvers vegna er þessi fjölmenna þjóð ekki betri í einni vinsælu íþrótt heims. Oddur Þórðarson reynir svara því.

Það hafa fleiri stórmót sett svip sinn á árið, vetrarólympíuleikarnir fóru fram fyrr á árinu og þar gekk á ýmsu. Játningar um framhjáhald, fótbrot og ásakanir um svindl og typpastækkanir er meðal þess sem var í umræðunni. Bjarni Pétur Jónsson fjallar um mál Sydney Milani sem var meinuð þátttaka á leikunum eftir sterar mældust í henni. Hún þvertekur fyrir hafa tekið stera og segir efnin hafa mælst í henni vegna kærasta hennar, hann hafi tekið stera og hún hafi annað hvort fengið efnin í sig eftir sopa af drykk sem hann blandaði eða með sæði úr kærastanum.

Birt

18. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,