Heimskviður

Sumar-Heimskviður - Tækni

Hálfleiðara þekkja fæstir en þeir eru engu síður í lífi okkar allra, nauðsynlegir í öllum helsta tæknibúnaði samtímans. Stærsti hluti þeirra er framleiddur í Taívan. Hvernig tókst Taívan verða svona framarlega í framleiðslu á þessari tækninauðsyn? Og hvað þýðir þetta fyrir öryggi landsins? Eru meiri líkur á innrás vegna þessarar dýrmætu tæknikunnáttu? Eða virkar hún sem skjöldur? Dagný Hulda segir okkur allt um hálfleiðarana og stöðu Taívan.

Íbúar í borginni Kherson í Úkraínu fara síður út þegar veðrið er gott. En þegar það er þoka, rigning og snjór búast við sjá fólk á gangi úti við. Og ástæðan? Skyggnið er verra og þá eru minni líkur á fólk sært eða drepið af drónum Rússlandshers. Kherson er í suðurhluta Úkraínu, við ána Dnipro. Hinum megin við ána eru rússneskir hermenn sem herja á borgarbúa alla daga með drónum. Á drónunum er myndavél og sprengiefni. sem stýrir dróna sér því hvert hann stefnir og viljandi er þeim beint fólki á gangi úti, jafnvel börnum, og bílum á ferð. Borgarbúar kalla þetta „human safari“ eða mannaveiðar. Það eins og Rússarnir séu á eftir almennum borgurum til særa þá eða drepa. Dagný Hulda segir frá.

Birt

6. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,