Heimskviður

67 | Réttað yfir Derek Chauvin og landamærabörnin í Bandaríkjunum

Heimskviður staldra við í Bandaríkjunum þessa vikuna. Réttarhöldin yfir Derek Chauvin, lögregluþjóninum sem myrti George Floyd í maí í fyrra, hófust í vikunni. Guðmundur og Birta ræða um hvað gerðist í kjölfar morðsins á Floyd, Black Lives Matter, og sjálf réttarhöldin, í fyrri hluta þáttarins.

Á síðasta ári hefur fylgdarlausum börnum, sem freista þess komast yfir landamærin frá Mexíkó til Bandaríkjanna, fjölgað gríðarlega. Í janúar á þessu ári voru þau tvöfalt fleiri en á sama tíma í fyrra. Fyrir þessu eru ýmsar ástæður. Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti fór ekki leynt með andúð sína á nágrönnum sínum í suðri í forsetatíð sinni, og hóf meðal annars reisa vegg á landamærunum. En þúsundir barna, fylgdarlausra, reyna eftir sem áður komast til Bandaríkjanna í hverjum mánuði. Kemur þetta til með breytast með nýjum forseta? Og hvað verður um þessi börn? Jóhannes Ólafsson ætlar segja okkur nánar frá þessu í síðari hluta þáttarins.

Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Birt

13. mars 2021

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,