Heimskviður

65 | Fótboltamót í skugga mannréttindabrota og verkefni Joe Bidens

Í Heimskviðum vikunnar er meðal annars fjalla um mannréttindabrot í Katar og helstu verkefni nýkjörins Bandaríkjaforseta, Joe Biden.

Tæp tvö eru þar til heimsmeistaramót karla í fótbolta verður haldið í þessu smáríki á Arabíuskaganum. Íslendingar vonast til vera þar meðal þátttökuþjóða, en undankeppni HM hefst í næsta mánuði þegar Íslendingar mæta Þjóðverjum ytra. Þetta er í fyrsta sinn sem heimsmeistaramótið fer fram í Arabalandi og í fyrsta sinn í landi þar sem múslimar eru í meirihluta. Þar sem hitinn á sumrin í Katar fer vel yfir fjörutíu gráður og stundum yfir fimmtíu, verður leikið frá miðjum nóvember fram í miðjan desember. En við ætlum ekki tala um fótbolta hér, heldur þá staðreynd það Katarar hafi ákveðið halda eitt stykki fótboltamót, hafi gert það verkum um sex þúsund og fimm hundruð farandverkavenn frá Indlandi, Pakistan, Nepal, Bangladesh og Sri Lanka hafa dáið við uppbyggingu á íþróttamannvirkjum og öðru sem tengist undirbúningi mótsins, á síðastliðnum áratug. Þetta kom fram í úttekt breska blaðsins Guardian í síðustu viku, og byggir hún á upplýsingum frá stjórnvöldum þessara landa.

Þá er einnig farið yfir stöðu mála í Bandaríkjunum. Eða ekki við, Bogi nokkur Ágústsson ætlar gera það, enda fáir betur til þess fallnir fara yfir sviðsmyndina þar vestra. Hann ætlar meðal annars segja okkur frá fystu verkefnum Bidens bæði í innanríkis- og utanríkismálum, stöðuna á Bandaríkjaþingi og líka áhrif fyrrum forseta Donalds Trumps, á Repúblikanaflokkinn. Á fyrsta degi í embætti undirritaði Joe Biden fjölda tilskipana til afnema ákvarðanir fyrirrennara síns. Biden hyggst gerbreyta stefnu Bandaríkjastjórnar bæði í innanríkis- og utanríkismálum. Demókratar ráða báðum deildum þingsins, en það getur samt reynst þrautin þyngri hrinda stefnumálum í framkvæmd og uppfylla loforð úr kosningabaráttunni. Bogi Ágústsson veltir fyrir sér við hverju megi búast í bandarískum stjórnmálum á næstunni og ræðir við Silju Báru Ómarsdóttur, prófessor í stjórnmálafræði.

Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Birt

27. feb. 2021

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,