Heimskviður

165| Framtíð Kristjaníu og forsetakosningar í Bandaríkjunum

Ein helsta sérstaða fríríkisins Kristjaníu í Kaupmannahöfn er gatan Pusherstræti, þar sem lengi fór fram sala á hassi fyrir opnum tjöldum án verulegra afskipta yfirvalda. Undanfarin ár hafa yfirvöld haft sífellt meiri afskipti af Pusherstræti og bendir allt til þess þessi kannbissala hætti alfarið. Hallgrímur Indriðason skoðar hvað skýrir þessa breytingu og hvaða áhrif hún hefur á þróun og tilvist fríríkisins.

Eins og staðan er núna er líklegast tvö afar kunnugleg nöfn standi á kjörseðli Bandaríkjamanna á næsta ári þegar velja á nýjan forseta.En nýr verður forsetinn kannski ekki því flest bendir til þess þeir Joe Biden og Donald Trump berjist aftur um búsetu í Hvíta húsinu næstu fjögur árin. En hvernig það vera í þessu fjölmenna og stóra landi standi valið aftur á milli núverandi forsetans, sem er þegar orðinn elsti til gegna embættinu og þrír af hverjum fjórum Bandaríkjamönnum vilja ekki bjóði sig aftur fram. Hinn valkosturinn er svo fyrrum forsetinn sem hefur verið í fullri vinnu síðan hann lét af embætti svara fyrir ýmsar sakir í dómssölum. Eða eru þeir tveir kannski bara best til þess fallnir stýra landinu? Birta og Bjarni Pétur spá í spilin þegar ár er til kosninga þar vestra.

Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Frumflutt

2. des. 2023

Aðgengilegt til

2. des. 2024
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,