Heimskviður

136| Stjórnmálakonur hætta og framtíð eyríkis í sýndarveruleika

Þemaþættir Heimskviða halda áfram og þessu sinni er sjónum beint svæði sem er hinum megin á jarðkringlunni, Nýja Sjálandi og eyríkinu Tuvalu.

Stjórnmálakonur sem hafa notið mikillar hylli alþjóðlega hverfa á braut ein af annarri, og segja álagið og atganginn sem fylgi nútímastjórnmálum helstu ástæðuna. Við ætlum rýna í stöðu kvenleiðtoga og ástæður þess aðeins tíu prósent þjóðarleiðtoga eru konur. Jacinda Ardern lét af embætti forsætisráðherra Nýja-Sjálands í síðustu viku. Afsögnin setur allt á hliðina í nýsjálenskum stjórnmálum, en kosið verður í haust og þegar ljóst eftirmaður hennar og félagar hans aldrei fara með flokkinn nærri þeim hæðum sem Jacinda Ardern gerði, en hún naut gríðarlega vinsælda, bæði í Nýja-Sjálandi en líka alþjóðlega. Bjarni Pétur Jónsson fjallar um málið.

Eyríkið Tuvalu í Kyrrahafi er eitt friðsælasta land í heimi. Þrátt fyrir það eru miklar líkur á á næstu áratugum verði hver og einn einasti íbúi eyjanna leggja á flótta. Gangi verstu spár um hækkandi sjávarmál eftir flæðir yfir eyjarnar og þær verða óbyggilegar. Túvalúar eru samheldnir og þó þeir eigi líklega eftir setjast víða um heim ætla þeir reyna halda hópinn. Það ætla þeir gera í sýndarveruleika, því hugmyndin er endurskapa eyríkið þar og hver og einn Túvalúi verði persóna í sýndarveruleikanum. Dagný Hulda Erlendsdóttir segir okkur frá þessum áhugaverðu framtíðarplönum.

Frumflutt

18. feb. 2023

Aðgengilegt til

20. feb. 2024
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.