Heimskviður

72 | Chauvin dæmdur og Rússland Pútíns

Í Heimskviðum þessa vikuna höldum við til Bandaríkjanna og Rússlands. Eitt stærsta fréttamál vikunnnar er án efa dómurinn sem féll yfir fyrrverandi lögreglumanninum Derek Chauvin á þriðjudag, sem myrti George Floyd í maí síðastliðnum. Tólf manna kviðdómur úrskurðaði Chauvin sekan í öllum þremur ákæruatriðunum. Ákæruatriðin voru þrjú, annarar gráðu morð, morð af þriðju gráðu og svo manndráp. Stöldrum aðeins við þarna, hvað þýðir þetta og af hverju er þetta svona flókið? Birta ræðir við afbrotafræðinginn Margréti Valdimarsdóttur.

Síðustu vikur hefur spennan á landamærum Rússlands og Úkraínu magnast, en Rússar hernámu Krímskaga árið 2014 og síðan þá hafa átök geysað á svæðinu. Á fimmtudag tilkynntu stjórnvöld í Rússlandi hinsvegar þau myndu draga herlið sitt til baka, og á flutningunum vera lokið fyrir fyrsta maí. Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur boðið Vladimír Pútín, forseta Rússlands, á leiðtogafund. En Krímskagi er áfram hernuminn af Rússum og þótt spenna síðustu vikna hafi minnkað, er engin skortur á fréttum frá Rússlandi. Guðmundur Björn ræddi við Val Gunnarsson, sagnfræðing, um Rússland Pútíns og hvað framtíðin ber í skauti sér.

Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Birt

24. apríl 2021

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,