Heimskviður

254 - Kjarnorka, 40 ár frá Chernobyl og Rússar lokka útlendinga á vígvöllinn

Það styttist í það verði heil 40 liðin frá kjarnorkuslysinu í Chernobyl. Áhrifanna gætir enn, söguna þekkja flestir en það tók nokkurn tíma fyrir önnur lönd átta sig á því sem hafði gerst. Sovésk yfirvöld reyndu halda slysinu leyndu og það var ekki fyrr en geislavirk efni voru farin berast til og mælast í andrúmslofti nágrannaríkjanna ljós var eitthvað verulega alvarlegt hafði gerst. Við rifjum upp söguna.

Kjarnorka er þó ekki alslæm og segja hún komin aftur í tísku eftir orkukreppur síðustu ára, sérstaklega í Evrópu. Við skoðum orkunotkur Evrópuríkja og hvaða áhrif hækkandi orkuverð hefur. En þó kjarnorkan í tísku þá fylgja henni margir ókostir, stærsti er kjarnorkuúrgangurinn og hvað á gera við hann. Finnar opna á næstu vikum fyrstu geymslustöðina fyrir kjarnorkuúrgang, sem er neðanjarðar undir stærsta kjarnorkuveri Finna.

Talið er á milli tuttugu og þrjátíu þúsund erlendir hermenn berjist með Rússlandsher á vígvellinum í Úkraínu, langflestir frá fátækum ríkjum. Hluti þeirra hélt sín biði vinna í Rússlandi, til dæmis við trukkaakstur eða í landbúnaði, en endaði svo á víglínunni. Vegabréfin eru tekin af þeim, rússnesk stjórnvöld geta upp á sitt eindæmi framlengt herþjónustuna þangað til stríðinu lýkur og margir hafa greint frá því vera hótað ofbeldi og dauða reyni þeir flýja. Danski fræðimaðurinn Karen Philippa Larsen fór til Úkraínu og ræddi við nokkra þessara erlendu hermanna sem teknir höfðu verið til fanga. Þeir sögðust helst hafa ráðið sig í vinnu til Rússlands í von um ríkisborgararétt og mannsæmandi laun. Hún segir aðstæður þeirra minna á mansal. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið.

Birt

18. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,