Heimskviður

251 - Kosningar í Færeyjum og Danmörku og áhyggjur af einkalánum

Samkvæmt okkar útreikningum voru samtals 4.308.068 Norðurlandabúar á kjörskrá í tvennum kosningum sem fóru fram í vikunni. Það var kosið í Danmörku á þriðjudag og í Færeyjum á fimmtudag. Við ætlum kafa aðeins í úrslitin í báðum löndum, skoða kosningabaráttuna og fleira.

Svo segjum við ykkur allt um einkalán sem valda sérfróðum á fjármálamarkaði talsverðum áhyggjum. Hætturnar í heimshagkerfinu eru æði margar um þessar mundir. Stríðið í Mið-Austurlöndum hefur keyrt verð á olíu og gasi í hæstu hæðir og hlutabréfamarkaðir um allan heim nötra. En þessir atburðir hafa dregið athyglina frá annarri undirliggjandi ógn sem ekki hefur farið jafn hátt en gæti, ef allt fer á versta veg, komið af stað heimskreppu eins og þeirri sem skók fjármálamarkaði árið 2008. Magnús Geir Eyjólfsson segir frá.

Birt

28. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,