Heimskviður

257 - Staðan í Venesúela og leikvangar fyrir kvennknattspyrnu

Athygli heimsbyggðarinnar var á Venesúela í byrjun árs þegar bandarískir hermenn tóku forseta landsins, Nicolás Maduro og eiginkonu hans Ciliu Flores, höndum og fluttu í fangelsi í New York þar sem þeim er enn haldið. Trump lýsti því yfir boðað yrði til kosninga og Bandaríkin tækju yfir olíuframleiðslu landsins. Þrátt fyrir vera risastórt fréttamál féll það fljótlega í skuggann af öðrum málum, eins og hótunum Trumps um taka yfir Grænland, árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran og árásum Ísraela á Líbanon, svo fátt eitt nefnt. Í Heimskviðum í dag ætlum við reyna glöggva okkur á því hvort eitthvað hafi breyst í Venesúela eftir Maduro var steypt af stóli. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið.

Enska fótboltafélagið Brighton and Howe Albion tilkynnti nýlega um byggingu nýs leikvangs sem verður eingöngu fyrir kvennafótbolta. Þetta yrði fyrsti völlur sinnar tegundar í Evrópu en fyrsti í heiminum var tekinn í notkun í Kansas City í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum. En hvað gerir þessa velli vænlegri fyrir kvennafótbolta og af hverju er ástæða til hafa slíka velli? Hallgrímur Indriðason, sem hefur horft á ófáa fótboltaleikina um ævina, kannar þetta.

Birt

9. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,