Heimskviður

64 | Dyatlov-leiðangurinn og lokun Guantanamo fangabúðanna

Í Heimskviðum vikunnar förum við til Rússlands og Kúbu, en fjöllum þó ekkert um sósíalisma.

Ráðgátan um örlög níu ungra Rússa sem fundust látin í Úralfjöllum árið 1959 gæti verið ráðin. Vinnsla við eina þekktustu Disney mynd síðari tíma virðist hafa hjálpað til við leysa þessa lífseigu ráðgátu. Þá leituðu rannsakendur sömuleiðis í gagnabanka þekkts bílaframleiðanda við uppljóstrun málsins. Birta Björnsdóttir fjallar um málið.

Þá segir Guðmundur Björn okkur frá því til stendur fangabúðum Bandaríkjastjórnar við Guantanamo-flóa á Kúbu verði lokað í stjórnartíð Joe Bidens. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í vikunni. 780 fangar hafa dvalið í búðunum frá því George Bush tilkynnti um opnun þeirra árið 2002. Margir vistmenn í Guantanamo voru fluttir þangað án þess hljóta réttláta málsmeðferð, og þurft sæta þar pyntingum. Mannréttindasamtök hafa lengi barist fyrir því fangabúðunum yrði lokað, og meðal annars bent á stangist á við ákvæði í stjórnarskrá Bandaríkjanna. Barack Obama hét því loka fangabúðunum í stjórnartíð sinni, en hafði ekki erindi sem erfiði. Donald Trump vildi halda þeim opnum, en ætlar Joe Biden reyna loka þeim.

Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Frumflutt

20. feb. 2021

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,