Heimskviður

168 - Saga Húta og Jemen og staða grænlenskunnar

Árásir Húta á Rauðahafi og árásir Bandaríkjamanna og Breta á Húta á móti hafa verið talsvert í fréttum það sem af er þessu ári og enginn friður í augsýn þar frekar en annars staðar í þessum heimshluta núna. Tilgangur þeirra árása, sögn Húta er hamla hefbundnum vöruflutningum til Ísraels þar til íbúum Gaza verði tryggðar alllar nauðsynjar á borð við mat, drykk og lyf. Hútar nota þessar aðferðir sömuleiðis til mótmæla aðgerðum Ísraelshers og bandamanna þeirra gegn Palestínumönnum á Gasa. Við vildum kynna okkur betur sögu Hútanna og ástæður þess þeir blanda sér með jafn afgerandi hætti í átökin. Birta Björnsdóttir fjallar um sögu Hútanna og ástandið í Jemen og ræðir við Þóri Jónsson Hraundal, lektor í Mið-austurlandafræðum við Háskóla Íslands.

Það er víðar en á Íslandi sem fólk hefur áhyggjur af áhrifum aukinnar snjalltækjanotkunar barna á móðurmálskunnáttu þeirra. Við ætlum kynna okkur stöðu mála á Grænlandi. Þar þrengir ekki aðeins grænlensku vegna áhrifa frá ensku, heldur líka dönsku. Þrátt fyrir grænlenska hafi í nokkur ár verið opinbert tungumál þar, er danskan enn fyrirferðamikil. Dagný Hulda Erlendsdóttir ræðir við formann mannréttindaráðs Grænlands sem týndi niður grænlenskukunnáttu sinni á fyrstu árunum í grunnskóla.

Ritstjórar þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Frumflutt

20. jan. 2024

Aðgengilegt til

20. jan. 2025
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,