Heimskviður

123| Mannskæður troðningur í Seúl og kosningar í Danmörku

Meira en 150 manns, lang mest ungt fólk, krömdust til dauða í miðborg Seúl, höfuðborgar Suður Kóreu, um síðustu helgi. Fólkið var fagna hrekkjavökunni, höfðu klætt sig upp í búninga því tilefni og planið var vera þar sem stuðið var mest. Itaewon hverfið í Seúl er lifandi djammsuðupottur, stútfullt af börum, skemmtistöðum og veitingastöðum - þar eru líka þröngar og sjarmerandi götur eins. Það var seint á aðfaranótt sunnudagsins síðasta, 29. október, sem þessar götur breyttust í dauðagildru. Hátt í hundrað þúsund manns söfnuðust saman á allt of litlu svæði í miðborginni, með hræðilegum afleiðingum. Lögreglan í Seúl hefur beðist afsökunar á því hafa ekki brugðist rétt við, hafa ekki búið sig undir þennan fjölda, hafa ekki tekið til greina allan þann fjölda neyðarsímtala sem þeim barst frá því snemma um kvöldið um þarna væri allt stefna í óefni. Hátt í 200 mann særðust, sum lífshættulega. Þetta er mannskæðasta slys í Suður Kóreu síðan MV Sewol ferjan sökk 2014 með hátt í 500 farþega innanborðs, þar af létust yfir þrjú hundruð manns, mest ungt fólk. Sunna Valgerðardóttir fjallar um málið.

Hallgrímur Indriðason er nýkominn frá Danmörku þar sem hann fylgdist með æsispennandi þingkosningum sem fram fóru á þriðjudag. Hallgrímur segir okkur frá kosningabaráttunni, kjördeginum og úrslitum kosninganna, þar sem finna nokkra sigurvegara og aðra sem riðu ekki jafn feitum hesti frá kosningunum.

Í Heimskviðum er fjallað um það sem gerist ekki á Íslandi. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta BJörnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

Frumflutt

5. nóv. 2022

Aðgengilegt til

9. júlí 2024
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

,