Heimskviður

163| Stjórnarkreppa á Spáni og sextugar samsæriskenningar

Stjórnarkreppan sem hefur verið á Spáni síðan í júlí leystist á fimmtudaginn þegar 179 þingmenn á spænska þinginu greiddu atkvæði með tillögu Pedros Sanchez, leiðtoga sósíalista, um meirihlutastjórn. Sanchez er þannig búinn púsla saman átta flokka meirihluta og verður áfram forsætisráðherra Spánar - eftir umdeilt samkomulag við flokka aðskilnaðarsinna í Katalóníu. Það samkomulag snýst meðal annars um sakaruppgjöf fyrir þrjú til fjögur hundruð manns sem komu atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Katalóníu. En hvernig lítur þetta samkomulag út, um hvað er deilt og hver er forsagan? Björn Malmquist ræddi spænsk stjórnmál við Jóhann Hlíðar Harðarson sem hefur búið á Spáni síðustu ár og Montserrat Riba Cunill, sem er yfirmaður sendinefndar Katalóníu fyrir Norðurlönd og Eystrasaltslöndin.

Þann 22.nóvember verða 60 ár liðin frá því John F. Kennedy, þá forseti Bandaríkjanna, var skotinn til bana í Dallas í Texas í Bandaríkjunum. Í síðasta mánuði fjölluðu flestir stærstu bandarísku fjölmiðlanna um nýja bók leyniþjónustumanns sem var á staðnum þegar Bandaríkjaforsetinn var myrtur. Hann ákvað gefa út endurminningar sínar sex áratugum eftir atburðinn, en frásögnin hefur enn og aftur þyrlað upp umræðu og kenningum um hver eða hverjir voru verki þennan örlagaríka dag í Dallas. En af hverju er enn verið skrifa fréttir um sannarlega sviplegt andlát Kennedys? Alls konar kenningar og samsæriskenningar hafa í gegnum tíðina verið viðloðandi umfjöllun um málið, sem sextíu árum síðar virðist enn tilefni til fjalla um. Og það gerir Birta Björnsdóttir í þættinum með aðstoð Magnúsar Sveins Helgasonar, sagnfræðings og sérfræðings í bandarískri sögu.

Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Frumflutt

18. nóv. 2023

Aðgengilegt til

18. nóv. 2024
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,