Heimskviður

175 - Fjölskyldustjórnmál á Filippseyjum og 20 ár frá sprengjuárásinni í Madríd

Á Filippseyjum fara nokkrar fjölskyldur með mestöll völd í landinu. Þær tvær sem komist hafa í hár saman undanförnu er fjölskylda forsetans, Ferdinands Marcos, sem er alnafni föður síns og fyrrum einræðisherra landsins. Hin er fjölskylda Rodrigos Dutertes, fyrrverandi forseta, sem oft var kallaður hinn filippeyski Donald Trump. Deilur þessara ættfeðra hafa stigmagnast og er svo komið Duterte hefur hótað stjórnvöld í sínu heimahéraði til lýsa yfir sjálfstæði og Marcos forseti hefur heitið beitingu hervalds komi til þess.

Á mánudaginn, þann 11. mars verða 20 ár liðin frá mannskæðasta hryðjuverki í Evrópu á þessari öld. Þá voru sprengdar 10 sprengjur í og við Atocha-lestarstöðina í miðborg Madrid, höfuðborgar Spánar. Þessa ódæðis er minnst alla þessa viku á Spáni, en atburðurinn markaði djúp sár í spænska þjóðarsál og hafði einnig gríðarleg áhrif á spænsk stjórnmál vegna atburðarásarinnar í kjölfar hryðjuverksins

Frumflutt

9. mars 2024

Aðgengilegt til

10. mars 2025
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,