Heimskviður

59 | Lokaþáttur: Stóri gagnalekinn og kynlífshneyksli þingmanns

Í fimmtugasta og níunda og síðasta þætti Heimskviða fjöllum við meðal annars um aðför ungverskra stjórnvalda fjölmiðlafrelsi og Evrópuþingmanninn sem sótti kynlífspartý með öðrum karlmönnum á meðan hann freistar þess takmarka réttindi hinsegin fólks. Þá segjum við frá raunverulegum möguleikum þess stóra gagnalekans, áhyggjur sem mörg viðruðu eftir þjónusta Facebook og Google bilaði á dögunum. Þá fjöllum við um viðburðaríkt ár á erlendum vettvangi og mikilvægi erlendra frétta.

Það þótti heldur neyðarlegt þegar ungverskur Evrópuþingmaður þurfti segja af sér eftir greint var frá því hann hafi brotið sóttvarnarreglur með því sækja kynlífspartý með 20 öðrum karlmönnum í Brüssel - maður sem talinn er höfundur stjórnarskrár sem takmarkar réttindi hinseginfólks. Þetta mál er hins vegar ein af birtingarmyndum slæmrar lýðræðisþróunar í Ungverjalandi. Ríkisstjórnin hefur tekið til sín sífellt meiri völd og stjórnar meðal annars fjölmiðlum og dómskerfi . En hefur mál þingmannsins einhverjar afleiðingar? Við skoðum það með Eiríki Bergmann stjórnmálafræðingi og Szabolcs Panyi rannsóknarblaðamanni í Ungverjalandi.

Flest okkar höfum á einhverjum tímapunkti óttast persónulegar upplýsingar um okkur leki á netið. Í það minnsta leitt hugann því. Almennir netnotendur vita þó sjaldnast hvar þessar upplýsingar þeirra eru í raun niður komnar. Eru þær grafnar í eitthvað gagnaver eða svífandi um í skýinu? Þegar upp koma vandræði hjá tæknirisum á borð við Facebook eða Google sem varða gagnaöryggi naga margir neglurnar og spyrja sig hvort komið stóra gagnalekanum. Hvort núna loksins verði helt úr stóra upplýsingapottinum. Það urðu einmitt bilanir í þjónustum þessara fyrirtækja, Facebook og Google á dögunum, með stuttu millibili. Áhyggjur af stóra lekanum eru eflaust óþarfar í bili. En hann vofir alltaf yfir og hvað gerist þá veit enginn. Fer samfélagið á hliðina eða verða hreinlega siðaskipti meðal manna? Jóhannes Ólafsson fjallar um málið og ræðir við Brynjólf Borgar Jónsson, hjá Data lab á Íslandi og Þröst Jónasson hjá Miracle.

Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Frumflutt

18. des. 2020

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,