Heimskviður

114 | Vígbúnaðarkapphlaup til tunglsins og Kevin Spacey

NASA, geimferðastofnun Bandaríkjanna, ætlar síðar í dag skjóta á loft geimflaug, þeirri lang öflugustu sem smíðuð hefur verið, og þar með segja Artemis verkefnið komið á fullt en helsta markmið þess er koma mönnuðu geimfari til tunglsins og síðar til Mars. Tólf karlmenn stigu fæti á tunglið á aðeins tæpum fjórum árum, frá 1969 til 1972. Og á endurtaka leikinn. Eða það átti gera það á mánudaginn en jómfrúargeimskotinu var frestað og verður síðdegis í dag ef allt gengur óskum. Bandaríkin leggja mikið kapp á vel takist til af því Rússar eða sérstaklega Kínverjar eru komnir langt fram úr þeim í geimrannsóknum. Og þrátt fyrir alla umræðu um uppgötvanir mannsins í geimnum, ferðir til Mars og aukin þekking á alheiminum, þá er þetta líka vígbúnaðarkapphlaup. Einna mikilvægustu hergögn dagsins í dag eru úti í geimnum, og það er mjög mikið undir fyrir stórveldin verða fyrst í mark. Bjarni Pétur Jónsson fjallar um málið.

Þeir hafa allnokkrir fallið af stallinum í Hollywood eftir metoo-byltinguna þar. Harvey Weinstein, R. Kelly, Michael Jackson, Bill Cosby, Roman Polanski, Woody Allen, Bryan Singer, Luc Beson, Marilyn Manson? svo einhver nöfn séu nefnd, voru allir opinberaðir sem kynferðisbrotamenn og níðingar eftir hafa fengið áreita hina og þessa ítrekað í áraraðir. Sumir eru í fangelsi, aðrir misstu bara vinnuna og æruna. Og auðvitað er þessi listi ekki tæmandi. Það vantar til dæmis eitt stórt nafn - Kevin Spacey - mál hans hefur verið kallað eitt stærsta og dramatískasta fallið í Hollywood. Ein skærasta og virtasta stjarna Bandaríkjanna er svo eitraður hann getur hvergi verið, enginn vill vinna með honum og enginn trúir honum. Tugir hafa stigið fram og sakað Spacey um áreitni og ofbeldi í gegnum tíðina, þrjú hafa fallið frá áður en til málaferla kom, honum hefur verið gert greiða óheyrilega háar fjárhæðir í bætur til Netflix vegna House of Cards og þetta virðist hvergi nærri hætt. Málin halda bara áfram koma. Sunna Valgerðardóttir sló á þráðinn vestur um haf og tók púlsinn á Hollywood með dyggri aðstoð Drafnar Aspar Snorradóttur Rozas, leikmyndahönnuðar, framleiðanda og Hollywood-fréttaritara sem þekkir mál Spaceys út og inn.

Í Heimskviðum er fjallað um allt það sem gerist ekki á Íslandi. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

Frumflutt

3. sept. 2022

Aðgengilegt til

5. sept. 2023
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.