Heimskviður

164| Undirheimastríð í Svíþjóð og það besta og versta á Indlandi.

Svíar vonast til glæpahrina haustsins á enda. Dregið hefur úr skot- og sprengjuárásum nærri sænsku höfuðborginni frá því mest var í september og október. Aðferðir glæpagengjanna sænsku og árásir eru óvenju hrottalegar. Börn og ungmenni eru fengin til fremja voðaverkin og æðstu kónarnir hundelta hver annan um alla Evrópu eins og í mafíumyndum eða glæpasögum frá Hollywood. Sænsk yfirvöld eiga erfitt með bregðast við og stjórnmálamenn koma sér saman um leiðir. En hvers vegna er svona komið fyrir fyrirmyndarríkinu Svíþjóð? Hvernig gengur yfirvöldum bregðast við og hvers vegna gerist þetta núna? Sváfu yfirvöld og Svíar á verðinum eða eru evrópsk glæpa- og eiturlyfjagengi styrkjast og orðin ófeimnari við heyja undirheimastríð sín fyrir augum almennings.

Indverjar náðu þeim merka áfanga fyrr á þessu ári verða fjölmennasta þjóð heims og mörg af efnuðustu löndum heims keppast við koma á viðskiptum við Indland enda hvergi í heiminum jafn mikill hagvöxtur og þar. Það er ekki hægt fullyrða eitt eða neitt varðandi Indland því þar er hægt finna allt það besta og um leið það versta í einu og sama ríkinu. Land þar sem upplýsingaóreiða og um leið hatursorðræða í garð minnihlutahópa fær blómstra og dafna í skugga þjóðernisflokks hindúa.

Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Frumflutt

25. nóv. 2023

Aðgengilegt til

13. jan. 2025
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,