Heimskviður

63 | Mannréttindabrot í Téteníu og kjarnorkuver í Hvíta-Rússlandi

Í síðasta þætti fjölluðum við um nágrannaríkin Mjanmar og Bangladesh. Í þættinum í dag ætlum við dvelja í Austur-Evrópu. Við fjöllum um jafn ólíka hluti og kjarorku annars vegar og svo ofsóknir gegn samkynhneigðum hins vegar.

Við byrjum í Téténíu. Mál tveggja tétenskra karlmanna komst í hámæli í vikunni, en þeir voru teknir höndum í Rússlandi þar sem þeir voru grunaðir um samkynhneigð, er virðist. Þaðan voru þeir fluttir til Téteníu og gætu átt yfir höfði sér langa fangelsisvist. Forseti Téténíu, Ramzan Kadyrov, þvertekur fyrir til séu samkynhneigðir Téténar, og mannréttindabrot hafi verið fram á samkynhneigðum þar í landi. En því eru samtök á borð við Amnesty International hreint ekki sammála, kannski eðlilega. Það hefur verið ráðist í alls kyns herferðir til reyna vekja máls á þessu, þau skipti hundruðum og jafnvel þúsundum fólkið sem er handtekið, pynta, dæmt og jafnvel drepið fyrir það eitt vera samkynhneigt í Téténíu. Það er erfitt rannsaka þessi mál, aðgengi upplýsingum er ekki gott og þegar leiðtogi landsins er á þessari vegferð er enn erfiðara heildarmyndina. En rannsóknir mannúðarsamtaka og frásagnir þeirra sem flúið hafa frá Téténíu eru meðal þess sem hægt er styðjast við og það eru ekki fallegar frásagnir. Það er eins og þetta komi í bylgjum, aðgerðir stjórnvalda. Það farið í svona rassíur og fjöldi fólks handtekinn hverju sinni. Frásagnir af pyntingum eru mjög margar og ófá dæmi þess fólk hafi hreinlega dáið við slíkar aðstæður. Alls kyns trúaratafnir til lækna samkynhneigð eru sömuleiðis vinsælar.

Kjarnorkuver hóf starfsemi í Hvíta-Rússlandi í nóvember en því var valin staður örstutt frá Vilníus höfuðborg Litáen. Stjórnvöld þar og Evrópusambandið hafa áhyggjur af kjarnorkuver reist á þessum stað, og ekki bætir úr skák óhöpp bæði við framkvæmdir og framleiðslu hafa verið býsna tíð. Þetta hefur valdið áhyggjum af því slys geti átt sér stað, en þau hafa afdrifaríkar afleiðingar þegar þau eiga sér stað í kjarnorkuverum eins og dæmin sanna. Hallgrímur Indriðason segir frá.

Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Frumflutt

13. feb. 2021

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,