Heimskviður

173 - Tvö ár síðan heimsmyndin breyttist og staða bænda í Evrópu

Í dag eru tvö ár liðin frá því innrás Rússa hófst af fullum þunga inn í Úkraínu. Innrás sem mörg óttuðust væri yfirvofandi en kom þó flestum í opna skjöldu. Við heyrum í Úkraínumönnum og þeim sem hafa sagt fréttir af þessu stríði auk þess sem Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir okkur frá stöðunni á vígvellinum. Flest eru sammála um gengi Úkraínu standi og falli með stuðningi Vesturlanda svo við spáum aðeins í framtíð þess stuðnings, sem hefur dalað undanfarið.

Í síðari hluta þáttarins beinum við kastljósinu stöðu bænda í Evrópu, sem hafa mótmælt kröftuglega undafarið. Þeir hafa truflað samgöngur í helstu borgum með því leggja dráttarvélum sínum við fjölfarnar götur, til ama og jafnvel tjóns fyrir borgarana. Óánægja þeirra beinist ýmsu, en mest tilskipunum Evrópusambandsins og stjórnvalda í Evrópu um draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í landbúnaði. Hallgrímur Indriðason rýnir nánar í ýmsar hliðar málsins og afleiðingar,

Frumflutt

24. feb. 2024

Aðgengilegt til

24. feb. 2025
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,