
Heimskviður
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Þetta verður síðasta tækifærið til þess að leiða landið aftur á braut lýðræðis, segir viðmælandi Heimskviða um komandi þingkosningar í Serbíu. Þetta hljómar dramatískt en hann er ekki einn á þeirri skoðun. Kosningunum er lýst sem þjóðaratkvæðagreiðslu milli mannsins sem nýverið sagði af sér sem forseti og vill núna verða forsætisráðherra og svo fjöldahreyfingar stúdenta sem hefur teflt fram sínum lista. Ólöf Ragnarsdóttir segir okkur frá tímamótakosningum í Serbíu.
Auðlindir heimsins taka á sig ýmsar myndir. Sum ríki hafa byggt auð sinn á olíu sem sótt er djúpt úr jörðu. Önnur reiða sig á gjöful fiskimið, frjósamt land eða ferðamenn sem koma í leit að sól og ævintýrum. Slíkar atvinnugreinar hafa oft vaxið og þróast í áratugi og byggja jafnvel á aldagömlum hefðum. En stundum þarf hvorki að leita að olíu né sækja verðmæti úr sjó. Stundum nægja tveir bókstafir og dálítil heppni. Angvilla er lítil eyja og breskt yfirráðasvæði í Karíbahafi, austur af Púertó Ríkó og rétt norðan við eyjuna Sankti Martin. Þar búa um sextán þúsund manns, svipaður fjöldi og í Mosfellsbæ. Þegar Angvilla fékk landslénið sitt á veraldarvefnum fékk það endinguna punktur ai. Lengi vel voru þetta einfaldlega tveir bókstafir sem vísuðu til nafns eyjunnar. Síðan varð gervigreind að einni stærstu tæknibyltingu samtímans og bókstafirnir ai fengu allt aðra merkingu. Hinrik Wöhler segir okkur frá landslénunum verðmætu.

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.