Í fimm ár hafa stjórnvöld lofað því að bæta úr námsgagnaskorti á Íslandi. Hinar Norðurlandaþjóðirnar verja hlutfallslega allt að tíu sinnum meira en við í námsgögn. Frumvarp um að bæta úr þessari stöðu hefur verið lagt fram af tveimur ríkisstjórnum, en það hefur þó aldrei farið í gegn. Starfshópar um stöðu námsgagna hafa verið skipaðir, skýrslur skrifaðar og málþing haldið en ekkert gerist. Í dag styttist í sumarfrí þingmanna og ekkert bólar á nýju námsgagnafrumvarpi. Íris E. Gísladóttir, formaður stjórnar Þróunarsjóðs námsgagna, kom í Síðdegisútvarpið.
Repúblikanar hafa sumir sýnt Donald Trump Bandaríkjaforseta aukna mótspyrnu á síðustu vikum og mánuðum. Forsetinn nýtur enn opinberlega stuðnings langflestra þingmanna í sínum flokki en sumir þeirra hafa að undanförnu greitt atkvæði gegn honum í einstökum málum. Við ræddum við Svanhildi Þorvaldsdóttur, dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, um pólitíkina í Bandaríkjunum.
Í dag buðum við upp á Spánarspjall og við settum okkur í samband við okkar mann á Spáni, Jóhann Hlíðar Harðarson.
Sr. Guðni Már Harðarson hefur verið ráðinn prestur við íslenska söfnuðinn í Danmörku og sendiráðsprestur Íslands í Kaupmannahöfn. Guðni hefur verið áberandi í kirkju- og æskulýðsstarfi um árabil, þjónað í Lindakirkju í 18 ár og komið að hinu vinsæla barnaefni Daginn í dag sem handritshöfundur og forsprakki. Guðni kom í heimsókn í Síðdegisútvarpið í dag.
Árni Matthíasson leit inn til okkar með sniðuga frétt af veraldarvefnum en það er fátt sem fer framhjá Árna sérstaklega ef það er eitthvað skrýtið og skemmtilegt.
Nýlega setti Logi Bergmann fram færslu á FB sem er svohljóðandi? Áttu mynd af Kóka í albúminu? Þá gæti hún átt erindi í bók. Logi vinnur nú að ævisögu Herberts. Ólasonar, eða Kóka, sem margir þekkja úr hestamennskunni, frá Cesar á Akureyri og sem stofnanda TOPREITER. Nú leitar hann til fólks sem á myndir af þessum litríka ævintýramanni til að lífga upp á bókina. Við heyrðum í Loga í þættinum en hann er einmitt staddur í Bandaríkjunum og er á leiðinni til Alabama hvar hann ætlar að horfa á leik Argentínu og Íslands í knattspyrnu karla í kvöld.