Síðdegisútvarpið

Húðflúr, NPA þjónusta og Grindavík

Eitt af öruggustu merkjum sumarsins er þegar fyrstu laxarnir fara skila sér í ár landsins. Í morgun bárust þær fréttir fyrsti lax væri kominn á land í Norðurá og í kjölfarið hafa fleiri laxar sést og veiðst. Við slóum á þráðinn í Borgarfjörð og heyrðum í Rafni Val Alfreðssyni sem er rekstraraðili í Norðurá og spurðum hann hvernig staðan er á ánni, hvernig sumarið leggst í veiðimenn og hvað þessi byrjun gæti sagt til um komandi veiðitímabil.

Ærin verkefni bíða nýrrar bæjarstjórnar Grindavíkur á þessu kjörtímabili. Stjórnin er með óhefðbundnu sniði en enginn meirihluti verður myndaður, þess í stað ætla allir bæjarfulltrúar vinna saman uppbyggingu samfélagsins. Fyrsti fundurinn var haldinn í vikunni, fram undan er meðal annars velja nýjan bæjarstjóra og halda Sjómannadaginn hátíðlegan! Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkur, var á línunni.

Fjarvinna jókst mikið í Covid 19 faraldrinum og bjuggust flestir kannski við því kominn væri nýr veruleiki á vinnumarkaði. Svo virðist þó ekki vera. Eða hvað? Helga Rún Jónsdóttir vinnur hjá fyrirtækinu Swapp Agency vinnur með fyrirtækjum sem eru með starfsfólk í öðrum löndum eða vilja halda í starfsfólk sem flytur erlendis. Hún vakti athygli í vikunni þegar hún setti ég upp skrifstofuaðstöðu á grasbletti við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar til vekja athygli á því hvernig vinnumarkaðurinn hefur breyst og hvernig fyrirtæki og starfsfólk geta í auknum mæli unnið saman þvert á landamæri. Helga Rún mætti til okkar.

Svo virðist sem skjálftavirknin sem var á Mosfellsheiði undanfarna daga hafi nær alveg dottið niður en þá kemur inn virkni á nýju svæði við vesturenda Langjökuls. Skjálftar hafa verið láta á sér kræla þar undanfarnar vikur, en í gærkvöldi urðu þar stærstu skjálftar sem mælst hafa í tæpa tvo áratugi. Tveir skjálftar, 3,8 og 3,3 stærð, urðu þá með stuttu milli bili og hafa nokkurhundruð skjálftar mælst í kjölfarið. Á línunni hjá okkur var Edda Arinbjarnar sem fann vel fyrir skjálftunum í Húsafelli.

Getur sveitarfélag samþykkt lögbundna þjónustu fyrir fólk og síðan látið það bíða árum saman eftir því hún verði fjármögnuð? Það er kjarninn í máli sem ÖBÍ réttindasamtök hafa höfðað gegn Reykjavíkurborg vegna notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar, NPA. Tugir einstaklinga hafa fengið umsóknir sínar samþykktar en bíða engu síður eftir þjónustunni. Málið var þingfest í dag og heyrðum í Ölmu Ýr Ingólfsdóttur formanni ÖBÍ í þættinum.

Um helgina fer fram í Gamla bíói íslenska húðflúr hátíðin eða Icelandic Tattoo convention og þetta í tuttugast sinn sem hún er haldin. Alls munu um 29 listamenn alls staðar úr heiminum flúra. Össur Hafþórsson hjá Reykjavík Ink hefur haft veg og vanda hátíðinni frá upphafi. Hann leit við í Síðdegisútvarpinu.

Birt

4. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,