Alls hafa 950 hlauparar frá 38 löndum skráð sig til leiks í Hengil Ultra-hlaupið sem verður haldið um helgina. Það stefnir í að hlaupið í ár verði það fjölmennasta í sögu viðburðarins en aldrei hafa jafn margir erlendir hlauparar tekið þátt. Undirbúningur er nú í fullum gangi enda aðeins þrír dagar til stefnu. Einar Bárðarson var á línunni og sagði okkur frá undirbúningnum.
Snjóflóðin sem féllu í Súðavík og á Flateyri fyrir þrjátíu árum eru ein þau mannskæðustu á síðustu öld. Aðeins hefur þó verið skipuð rannsóknarnefnd Alþingis um það sem féll í Súðavík, og voru niðurstöðurnar kynntar í desember. Sóley Eiríksdóttir var ellefu ára gömul þegar hún lenti undir flóðinu sem féll á Flateyri í október 1995 og var föst undir snjófarginu í níu klukkustundir. Alþingi hefur ekki svarað beiðni hennar um að sambærileg rannsóknarnefnd verði skipuð um það flóð. Við ræddum við hana.
Ökumenn eru allt að 23 sinnum líklegri til að lenda í slysi þegar þeir lesa eða skrifa skilaboð undir stýri. Samt viðurkenna fæstir að þeir stundi slíkt Farsímanotkun er talin valda 12–25% umferðarslysa og því hefur Samgöngustofa sett í gang átak til að sporna við notkun farsíma undir stýri. Gunnar Geir Gunnarsson frá Samgöngustofu kom til okkar.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tilkynnti fyrr í dag að hún hefði ákveðið að láta af þingmennsku eftir um áratug á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hún var 28 ára þegar hún var skipuð dómsmálaráðherra, þá næstyngsti ráðherra í sögu Íslands, og síðar tók hún við embætti háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Við ræddum við Áslaugu um þessi kaflaskil.
Þingvellir gegna einstöku hlutverki í sögu og sjálfsmynd þjóðarinnar. Nú hefur íslenska ríkið tekið við höfðinglegri gjöf frá erfingjum Valdimars Jónssonar sem ætlað er að styðja við vernd og uppbyggingu staðarins. Þá hefur einnig vakið athygli að hópur þjóðþekktra einstaklinga vill fá leyfi til að grafa upp meint bein skáldsins Jónasar Hallgrímssonar á Þingvöllum til að skera úr um hvort þar séu í raun beinin hans. Ofan á þetta stendur þjóðgarðurinn frammi fyrir einu stærsta verkefni síðari ára þegar allt að 20 þúsund gestir eru væntanlegir á Bergmál, stóra tónlistarhátíð með Kaleo síðar í mánuðinum. Um þessi mál, verndun Þingvalla og þær áskoranir og tækifæri sem fylgja rekstri þjóðgarðsins, ræddum við við Einar Sæmundsen, þjóðgarðsvörð á Þingvöllum.
Í fimm daga í ágúst hýsir Snæfellsjökull einstaka samkomu tónlistar, lista, vísinda, vellíðunar og almyrkva. Sólmyrkvahátíðin á Íslandi, Eclipse festival, er nafnið á hátíðinni þar sem á þriðja hundrað viðburða eru skipulagðir. Gert er ráð fyrir fjölda erlendra gesta á hátíðina og er þegar uppselt á suma viðburðina. Jón Bjarni Steinsson skipuleggjandi sagði okkur nánar frá þessum viðburði.