Eftir ríflega tveggja mánaða bið eru Danir loks komnir með nýja ríkisstjórn. Hana mynda Jafnaðarmannaflokkurinn, Sósíalíski þjóðarflokkurinn, Moderaterne og Radikale. Klukkan tvö í dag að íslenskum tíma hófst blaðamannafundur þar sem formenn flokkanna kynntu helstu stefnumálin á kjörtímabilinu. Jórunn Einarsdóttir kennari, sem er búsett í Kaupmannahöfn, fylgdist með fundinum og var á línunni.
Bændablaðið greinir frá erfiðri samkeppnisstöðu kartöflubænda. Kartöflubóndi í Eyjafirði, sagði nýlega í grein í blaðinu allt stefna í að bændur þyrftu nú að henda fleiri hundruð tonnum af íslenskum kartöflum frá síðasta hausti, þar sem ekki tækist að selja þær í vonlausri samkeppni við innflutninginn. Óttast hann að héldi sama þróun áfram myndi íslensk kartöflurækt leggjast af. Við heyrðum í Axel Sæland, formanni garðyrkjudeildar Bændasamtaka Íslands, um þessa stöðu.
Í nýrri bók sinni fjallar Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur um ástina sem færni, viðhorf og daglega iðkun en ekki aðeins sterka tilfinningu sem kemur og fer. Bókin, Í augum þínum verð ég til – um ástina, fjallar um ástina frá sjónarhóli sálfræði, þróunarsögu og rannsókna á heilbrigðum samskiptum og samböndum. Við vorum á rómantískum nótum með Guðbrandi Árna í dag.
Fasteignamat íbúðarhúsnæðis lækkar um 3,8 prósent að raunvirði á milli ára. Mikil kólnun hefur verið á fasteignamarkaðnum síðustu misseri og hefur fasteignaverð ekki haldið í við verðbólgu. Við ræddum við Jónas Atla Gunnarsson, yfirhagfræðing Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, og Hugrúnu Ýr Sigurðardóttur, teymisstjóra fasteignamats, um þessa þróun.
Foreldrar vita að það er oft krefjandi verkefni að finna afþreyingu fyrir börnin á sumrin. Við ætlum að forvitnast um eina slíka afþreyingu sem Siglingaklúbburinn Þytur í Hafnarfirði býður uppá. Sumarnámskeið fyrir börn á aldrinu 10 til 16 ára þar sem þau læra að umgangast sjóinn af ábyrgð og læra að bregðast við síbreytilegum aðstæðum undir handleiðslu faglærðra þjálfara. Þau Helga Veronika Foldar formaður klúbbsins og Huldar Örn Sigurðsson stjórnarmaður komu til okkar.
Sjónvarpsrýnir Síðdegisútvarpsins kom í heimsókn í lok þáttar. Ragnar Eyþórsson, sjónvarpsframleiðandi, fór yfir það sem er í boði fyrir hámhorfið í fríinu og mælti með góðum þáttum.