Síðdegisútvarpið

Plokkdagurinn, fyrirkomulag einkunna í grunnskólum og sveitastjórnarkosningar

Við byrjuðum á landsbyggðinni! Oddvitar flokkanna sem bjóða fram í Hveragerði þeir mætast líka í umræðum á ruv í dag. Hún Laufey Sif Lárusdóttir, athafnakona og eigandi Ölverks, er á línunni en hún ræddi við okkur um málefni bæjarins.

Innritun í framhaldsskóla hefur verið til umræðu undanfarið, meðal annars hvort taka eigi upp tölueinkunnir á ný. Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands telur núverandi kerfi, sem byggir á hæfnimiðuðu mati, gefi mun réttlátari og heildstæðari mynd af nemendum en í núverandi kerfi þar sem notaðir eru bókstafir. Magnús kom í Síðdegisútvarpið í dag.

Á sunnudaginn fer fram Stóri plokkdagurinn og við ætlum heyra í Elínu Birnu Bjarnfinnsdóttur sem býr á Eyrabakka en hún er einn öflugasti plokkari landsins. Elín hefur vakið athygli fyrir dugnað sinn en hún fer reglulega út tína rusl, oft nokkrum sinnum í viku, sama hvernig viðrar. Við ræddum við hana um plokkdaginn, hvatann á bak við þetta öfluga átak og hvernig einfaldar aðgerðir geta haft raunveruleg áhrif á umhverfið okkar.

Í tilefni af umræðum oddvita í Borgarbyggð í kvöld ætlum við taka púlsinn á sveitarfélaginu. Við heyrðum í Theodóru Þorsteinsdóttur, fyrrverandi skólastjóra Tónlistarskóla Borgarfjarðar, og fengum hana til segja okkur frá lífinu í Borgarnesi.

Ljósmyndarafélag Íslands fagnar á þessu ári 100 ára afmæli sínu, en félagið var stofnað árið 1926 af frumkvöðlum sem lögðu grunn faglegri ljósmyndun á Íslandi . Á þessari öld hafa orðið gríðarlegar breytingar á miðlinum. tilefni af þessum tímamótum verður opnuð ljósmyndasýning sem endurspeglar þá þróun sem orðið hefur og mikilvægi ljósmyndarinnar sem vitnisburðar um samfélag, sögu og augnablik sem aldrei endurtaka sig. Þeir komu til okkar Guðmundur Viðarsson formaður félagsins og Gunnar Leifur Jónasson meðstjornandi .

Stóri plokkdagurinn er á sunnudaginn eins og hefur komið fram og í tilefni hans ætla meðal annars íbúasamtök miðborgar Reykjavíkur afhenda plastpoka og plokktangir fyrir þau sem vilja vera með. Til segja okkur nánar frá komu þeir til okkar Guðjón Óskarsson, sem hefur vakið athygli með starfi sínu losa borgina við tyggjóklessur og með honum Pétur Hafþór Jónsson, ritari í stjórn Íbúasamtaka Miðborgar Reykjavíkur.

Birt

24. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,