Deilur um skólahald í Grindavík eru helsta bitbein heimamanna og ríkisins, að sögn fulltrúa Járngerðar sem eru hagsmunasamtök Grindvíkinga. Á fundi samtakanna í gær kom fram að gjáin milli Grindvíkinga og stjórnvalda fari vaxandi og að framtíðarskipulag sé ekki lengur í þeirra höndum sérstaklega þegar kemur að skólahaldi. Við heyrðum í formanni samtakanna Guðbjörgu Eyjólfsdóttur
Öryggissérfræðingar hjá Syndis vara við aukinni hættu á sérsniðnum netsvikum eftir að bókunargögn tengd Booking.com komust í umferð. Bent er á að nýlegur aðgangur óviðkomandi að bókunargögnum sé sérstakt áhyggjuefni, þar sem slík gögn geta orðið „fullkomið hráefni fyrir mjög markviss svik“. Við ræddum þetta við Anton Má Egilsson, forstjóra netöryggisfyrirtækisins Syndis.
Umhverfis- og Orkustofnun vaktar plastmengun í hafinu umhverfis Ísland. Það er gert með því að rannsaka magnið af plasti í maganum á fýlum. Nýjustu tölur sýna að útlitið er ekki sérlega gott en nær sjö af hverjum tíu íslenskum fýlum er með plast í meltingarvegi. Katrín Sóley Bjarnadóttir, sérfræðingur í teymi hafs og vatns hjá Umhverfis- og Orkustofnun kom til okkar.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra sagði í Morgunblaðinu í gær að hann ætti ekki von á að svokölluð Loftbrú, sem veitir afsláttarkjör til þeirra sem eiga lögheimili á landsbyggðinni, verði lögð af en það verði gerðar breytingar á henni. Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var einn af þeim sem kom að Loftbrúnni á sínum tíma en hún var tekin í notkun í september 2020. Njáll Trausti hefur áhyggjur af þessum hugsanlegum breytingum við heyrðum í honum.
Aðeins 1.500 manns mættu á Laugardalsvöll til að hvetja íslenska kvennalandsliðið í fótbolta áfram í leiknum gegn Úkraínu á þriðjudaginn. Stuðningurinn við liðið skiptir gríðarlega miklu máli en stelpurnar okkar eiga raunhæfan möguleika á að næla sér í sæti á lokakeppni HM - í fyrsta sinn! Víðir Sigurðsson, einn reynslumesti íþróttablaðamaður landsins, hann kom til okkar.
Ár er liðið frá því Rafmennt tók yfir starfsemi Kvikmyndaskóla Íslands í kjölfar gjaldþrots skólans, með það að markmiði að tryggja áframhaldandi kvikmyndamenntun hér á landi. Nú er litið yfir farinn veg og horft til næstu skrefa – við ræddum við Þór Pálsson sem er framkvæmdastjóri hjá Rafmennt.