Síðdegisútvarpið

Loftbrúin, dræm mæting á Laugardalsvöll á landsleik kvenna og Járngerður

Deilur um skólahald í Grindavík eru helsta bitbein heimamanna og ríkisins, sögn fulltrúa Járngerðar sem eru hagsmunasamtök Grindvíkinga. Á fundi samtakanna í gær kom fram gjáin milli Grindvíkinga og stjórnvalda fari vaxandi og framtíðarskipulag ekki lengur í þeirra höndum sérstaklega þegar kemur skólahaldi. Við heyrðum í formanni samtakanna Guðbjörgu Eyjólfsdóttur

Öryggissérfræðingar hjá Syndis vara við aukinni hættu á sérsniðnum netsvikum eftir bókunargögn tengd Booking.com komust í umferð. Bent er á nýlegur aðgangur óviðkomandi bókunargögnum sérstakt áhyggjuefni, þar sem slík gögn geta orðið „fullkomið hráefni fyrir mjög markviss svik“. Við ræddum þetta við Anton Egilsson, forstjóra netöryggisfyrirtækisins Syndis.

Umhverfis- og Orkustofnun vaktar plastmengun í hafinu umhverfis Ísland. Það er gert með því rannsaka magnið af plasti í maganum á fýlum. Nýjustu tölur sýna útlitið er ekki sérlega gott en nær sjö af hverjum tíu íslenskum fýlum er með plast í meltingarvegi. Katrín Sóley Bjarnadóttir, sérfræðingur í teymi hafs og vatns hjá Umhverfis- og Orkustofnun kom til okkar.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra sagði í Morgunblaðinu í gær hann ætti ekki von á svokölluð Loftbrú, sem veitir afsláttarkjör til þeirra sem eiga lögheimili á landsbyggðinni, verði lögð af en það verði gerðar breytingar á henni. Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var einn af þeim sem kom Loftbrúnni á sínum tíma en hún var tekin í notkun í september 2020. Njáll Trausti hefur áhyggjur af þessum hugsanlegum breytingum við heyrðum í honum.

Aðeins 1.500 manns mættu á Laugardalsvöll til hvetja íslenska kvennalandsliðið í fótbolta áfram í leiknum gegn Úkraínu á þriðjudaginn. Stuðningurinn við liðið skiptir gríðarlega miklu máli en stelpurnar okkar eiga raunhæfan möguleika á næla sér í sæti á lokakeppni HM - í fyrsta sinn! Víðir Sigurðsson, einn reynslumesti íþróttablaðamaður landsins, hann kom til okkar.

Ár er liðið frá því Rafmennt tók yfir starfsemi Kvikmyndaskóla Íslands í kjölfar gjaldþrots skólans, með það markmiði tryggja áframhaldandi kvikmyndamenntun hér á landi. er litið yfir farinn veg og horft til næstu skrefa við ræddum við Þór Pálsson sem er framkvæmdastjóri hjá Rafmennt.

Birt

16. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,