Síðdegisútvarpið

Reykjavíkurleiðin í leikskólum, Landmannalaugar að vetri og sleðabraut í Hlíðarfjall

Fyrir nokkrum misserum óskaði Akureyrarbær eftir hugmyndum um nýja afþreyingu í Hlíðarfjalli. Ein af þeim tillögum sem var valin, var sleðabraut og í vikunni var síðan undirritaður samningur um afnot af landi til reksturs sleðabrautar milli Hlíðarfjalls og Hálanda. Hallgrímur Kristinsson, hjá Kambagil ehf., sem rekur sviflínuna Mega Zipline í Kömbunum, sagði okkur meira um sleðabrautina.

Í byrjun mánaðarins komu til okkar tveir leikskólastjórar og sögðu álagið á starfsmönnum á leikskólum borgarinnar vera óhóflegt og vildu vara við því sífellt fleiri starfsmenn kunni láta af störfum haldi staðan áfram óbreytt. Og þær bundu vonir við vinnu sem Reykjavíkurborg var í og var svo kynnt til sögunnar í gær. En vonbrigðin yfir niðurstöðunni er mikil. Ekki virðist vera tekið á þeim málum sem brann á hópi leikskólastjóra. Hópurinn fundaði aftur í gær til ráða ráðum sínum. Þær Ásta Kristín Svavarsdóttir, leikskólastjóri Jöklaborgar og Linda Rún Traustadóttir leikskólastjóri Borgar sögðu okkur hvað hópurinn hyggst gera næst.

Íslenska kvikmyndin Röskun var forsýnd í gær og fer svo í almennar sýningar á morgun. Myndin er gerð eftir skáldsögu Írisar Aspar Ingjaldsdóttur, handritshöfundur er Helga Arnardóttir og leikstjóri Bragi Þór Hinriksson. Leikstjórinn kom til okkar ásamt aðalleikkonunni Þuríði Blæ Jóhannsdóttur.

Veitingageirinn hefur náð þolmörkum. SVEIT, Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði benda á þetta og óska eftir heildarsýn og pólitísku hugrekki. Atvinnulífið allt fast í hringekju hækkana á víxl. Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri SVEIT, kom til okkar.

Borgarráð samþykkti í síðustu viku breytingar á reglum sem heimila áfengissölu á íþróttaviðburðum uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Undanfarin ár hafa ítrekaðar undanþágur verið veittar frá banninu og sum félög haft varanleg veitingaleyfi. Þetta hefur skapað ójafnræði og óvissu milli félaga. Með nýju reglunum á tryggja samræmdar og gagnsæjar leikreglur, með áherslu á forvarnir og vernd barna og ungmenna. Skúli Helgason situr í nefnd sem lagði til þessar breytingar og hann kemur til okkar og við ræddum við Skúla um þessar nýju tillögur í leikskólamálum hjá borginni.

Á FB síðu Ferðafélags Íslands rekur skála víðs vegar á hálendinu og einn þeirra er staðsettur í Landmannalaugum. Þar er skálavörðurinn mættur og miðað við þær ljósmyndir sem fylgdu færslunni er vetrarlegt um lítast og allt á kafi í snjó. Við ætlum slóum á þráðinn í Landmannalaugar og heyrðum Halldóri Hafdal Halldórssyni skálaverði.

Birt

18. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,