Akraneskaupstaður hefur lýst yfir miklum áhyggjum af frumvarpi um stofnun innviðafélags ríkisins. Í umsögn bæjarins kemur fram ótti við að gjaldtaka í Hvalfjarðargöngum verði tekin upp á ný ef frumvarpið verður samþykkt. Bent er á að fjármálaráðherra fái heimild til að færa samgöngumannvirki yfir til nýs félags, og að þar kunni meðal annars að vera horft til gangnanna. Bæjaryfirvöld leggjast því eindregið gegn áformunum. Við heyrðum í bæjarstjóranum Haraldi Benediktssyni.
Auður Jónsdóttir, Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamenn á Heimildinni og Kjartan Þorbjörnsson ljósmyndari fóru á dögunum til Grænlands til að kynna sér betur daglegt líf í landinu. Þau tóku fjölmarga tali í þeim tilgangi til að fá skýrari mynd af því hvernig fólki líður í landi sem hefur sjaldan eða aldrei verið eins mikið í umræðunni eins og síðustu vikur og mánuði. Auður Jónsdóttir kom til okkar í þáttinn í dag.
Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum að Vetrarólympíuleikarnir eru í fullum gangi og dagskráin hjá okkur á Ruv sýnir frá leikunum nánast frá morgni til kvölds. Alpagreinar skíðaíþrótta eru í fullum gangi og sá sem lýsir fyrir okkur í beinni útsendingu heitir Jakob Helgi Bjarnason hann og kom í Síðdegisútvarpið.
Hryðjuverkamálið svokallaða var tekið fyrir í Hæstarétti í dag. Málið snýr meðal annars að því hvort hægt sé að sakfella þá Sindra Snæ Birgisson og Ísidór Nathanson fyrir skipulagningu á hryðjuverki eða ekki. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir fréttamaður kom til okkar.
Bæjarráð Garðabæjar samþykkti ígær að ganga til samninga við ríkið um makaskipti á tveimur lóðum vegna byggingar meðferðarheimilis í bænum. Saga byggingarinnar rekur sig rúm sjö ár aftur í tímann. Og við spyrjum af hverju svo langur tími? Almar Guðmundsson bæjarstjóri var á línunni.
Röntgen Domus hefur nýlokið við að setja upp tvö ný tölvusneiðmyndatæki af fullkomnustu gerð á stöðvar sínar á Egilsgötu og í Mjódd. Tækin eru hraðvirkari, gefa frá sér minni geislun og eru nákvæmari en þau tæki sem hingað til hefur verið notast við. En hver er þróunin og hvernig lítur framtíðin út? Magnús Baldvinsson er einn eiganda Röngten Domus hann kom til okkar.
Litli leikklúbburinn heitir leikfélagið á Ísafirði en þau frumsýndu síðasta sunnudag gamanleikritið Beint í æð í leikstjórn Birgittu Birgisdóttur í Edinborgarhúsinu, menningarhúsinu í Ísafjarðarbæ. Síðdegisútvarpið var vitaskuld á staðnum því Kristján Freyr mætti þar galvaskur og hitti þar fyrir Dóru Hlín Gísladóttur sem er í stjórn leikfélagsins og aðalleikara sýningarinnar Jónas Þór Birgisson sem er apótekarinn í