Um helgina heldur hópur kvenna í veiðiferðina „Kastað til bata“. Ferðin er samstarfsverkefni á vegum Brjóstaheilla- Samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélagsins, Stangveiðifélags Reykjavíkur og styrktaraðila. Förinni er heitið að Langá á Mýrum en ferðin er hugsuð sem endurhæfing fyrir konur vegna brjóstakrabbameins. Til að segja okkur betur frá þessu komu Rún Knútsdóttir frá Stangveiðifélagi Reykjavíkur og Guðrún Kristín Svavarsdóttir frá Brjóstaheillum og Krabbameinsfélaginu.
Alexander Kristjánsson fréttamaður fór yfir stöðuna á Alþingi þar sem þingmenn greiddu í dag atkvæði um hvort Íslendingar ættu að fá að greiða atkvæði um í ágúst hvort halda eigi aðildarsambandsviðræðum áfram eður ei.
Hækkandi eldsneytisverð, hertara regluverk vegna loftslagsmála og kjaradeilur hafa þyngt róður flugfélaga. Í Evrópu er mikil samþjöppun á flugmarkaðnum fram undan en hér heima hefur Icelandair ítrekað þurft að aflýsa flugferðum vegna óformlegra verkfallsaðgerða og gengi bréfa félagsins stendur í 0,7 krónum. Jón Karl Ólafsson, ráðgjafi og fyrrverandi forstjóri Icelandair, rýndi í stöðuna á flugmarkaðnum með okkur.
Hvalfjarðargöng hafa undanfarnar átta vikur verið lokuð á kvöldin og nóttunni en nú sér fyrir endann á því, því síðasta nóttin er framundan. Göngin hafa verið lokuð frá hálftíu til sex á morgnana á meðan verið er að skipta út gömlum ljósabúnaði. Fyrirtækið Rafmenn á Akureyri hefur séð um framkvæmdina. Okkur lék forvitni á að vita hvernig verkið hefði gengið og hringdum í verkstjórann á staðnum, Ketil Þór Thorstensen.
Þjóðleikhúsið sópaði til sín verðlaunum á Grímunni í vikunni, þar sem Óresteia og Lína reyndust sigursælustu verkin. Þrátt fyrir hækkandi miðaverð hefur salan verið með mesta móti, en á síðasta ári seldust alls 105 þúsund miðar. Við gerum upp leikárið með Magnúsi Geir Þórðarsyni þjóðleikhússtjóra.
Við íslendingar erum dugleg að grilla; vetur, sumar, vor og haust. En færri hafa helt sér algerlega í reykinga og BBQ heiminn. Vinna kjötið í heimareykofni og hægelda það síðan í fleiri klukkutíma. En slíkar aðferðir á að kynna RVK BBQ Festival 2026 sem er fyrsta matarhátíðin á Íslandi sem helguð er BBQ- og reykmatargerð. Hátíðin mun fara fram um helgina í húsnæði Kolaportsins í miðborginni. Yfirskriftin er „Reykur. Eldur. Stemning“. Róbert Aron Magnússon hjá Götubitanum sagði okkur allt um þessa matarhátíð.