Síðdegisútvarpið

Kosningaúrslit í Ungverjalandi, afbrotavæðing hjá börnum í Svíþjóð og ritlistabúðir.

Ritlistarbúðirnar Iceland Writers Retreat eru haldnar hér á Íslandi í vikunni. Víðfrægir höfundar frá mörgum löndum leiðbeina þar þátttakendum á málstofum um ritlist og bókaskrif. sem veit allt um þetta er fyrrum forsetafrú Eliza Reid og hún kom til okkar.

Við ætlum beina sjónum okkar nágrannaþjóðum okkar í Skandinavíu þar sem ítrekað berast fréttir af börnum og unglingum sem fremja alvarleg ofbeldisbrot gegn greiðslu. Þessu fyrirkomulagi hefur verið lýst sem nokkurs konar afbrotaþjónustu ungmenna. Upphaflega var þessi tegund afbrota aðallega bundin við Svíþjóð en síðustu ár hefur hún orðið meira og meira áberandi í Noregi og Danmörku. Við ræddum við Margréti Valdimarsdóttur afbrotafræðing um þessa þróun og hvort við Íslendingar þurfum hafa áhyggjur.

Við ræddum um Netöryggismál en gervigreindin virðist vera gera hökkurum lífið auðveldara - Ýmir Vigfússon tæknistjóri og einn stofnenda Keystrike og hann ræddi við okkur um þessi mál.

Vegagerðin boðar til ráðstefnu í vikunni undir yfirskriftinni Horfum fram á veginn, þar sem fjallað verður meðal annars um hvernig hægt er klára stórar framkvæmdir á réttum tíma og innan fjárhagsramma, og hvernig staðið er viðhaldi og uppbyggingu innviða. stendur Vegagerðin frammi fyrir miklum áskorunum í vegagerð, ekki síst þar sem nokkur jarðgöng eru í pípunum. Bergþóra Þorkelsdóttir er forstjóri Vegagerðarinnar og við ræddum um við hana um þessar áskoranir og hvað verður helst í brennidepli á ráðstefnunni.

Í gær var kosið í Ungverjalandi og guldu sitjandi öfl þar afhroð og misstu meirihlutann á þingi. Tisza-flokkurinn vann stórsigur á flokki Viktors Orban, forsætisráðherra, sem hefur verið við völd í 16 ár og hlaut tvo þriðju hluta þingsæta. En hvaða þýðingu hefur þetta fyrir Evrópu sem heild? Snærós Sindradóttir, sem er framkvæmdarstjóri Evrópuhreyfingarinnar, bjó í Ungverjalandi um tíma og fylgdist vel með kosningunum. Hún kíkti til okkar.

Hvert stefnir Ísland ? Alþjóðasamvinna á krossgötum er yfirskrift ráðstefnu sem Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands ásamt fleiri stofnunum stendur fyrir á morgun. Rástefnan er öllum opin og við ætlum heyra meira af því sem þar verður rætt - við heyrðum í Piu Hansson forstöðumanni Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.

Birt

13. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,