Tilraunaverkefni um ungbarnavænar sundlaugar hefst í Breiðholtslaug í mars, þar sem prófaðar verða leiðir til að bæta aðstöðu og upplifun yngstu sundlaugagestanna og fjölskyldna þeirra. En hvað felst í þessari tilraun? Helga Friðriksdóttir, skrifstofustjóri íþróttaborgarinnar spjallaði við okkur.
Í nýrri úttekt Viðskiptaráðs um veikindarétt opinberra starfsmanna kemur fram að veikindafjarvera í opinbera geiranum er tvöfalt algengari en í einkageiranum. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, hefur gagnrýnt niðurstöðurnar og segir samanburðinn villandi. Hún bendir á að um sé að ræða ólík störf og að stór hluti opinberra starfsmanna sé í framlínustörfum í umönnun þar sem álagið sé mikið. Við ætlum að velta fyrir okkur mögulegum ástæðum aukinnar veikindafjarveru –en kvíði og geðheilsa virðast þar skipta verulegu máli. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri Kara Connect, kom til okkar en fyrirtækið vinnur með fyrirtækjum að því að bæta heilsu og starfsumhverfi starfsfólk.
Sænska sjónvarpsstöðin TV4 sagði í morgun að árás óvinveitts ríkis á orkuinnviði á Norðurlöndum væri yfirvofandi, og hafði þetta eftir heimildarmönnum sínum. Leyniþjónusta sænska hersins segir þó að engin sérstök ógn sé á bak við aukinn viðbúnað. En hvernig standa þessi mál hérlendis? Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, kom til okkar.
Óskar Páll Sveinsson kvikmyndagerðarmaður er nýkominn úr ævintýraferð til Grænlands en þetta var í sjöunda sinn sem hann slæst í för með Ragnari Axelssyni ljósmyndara. Hann segir í færslu á FB svo við vitnum beint í “ Maður fer þarna út með plön sem oftast fjúka út í buskann í fyrsta stormi, nú eða síminn hringir og það er ísbjörn á ferðinni og stefnir beint á þorpið". Brátt kemur út heimildarmynd um ferðalagið. Óskar mætti í Síðdegisútvarpið í dag.
Að greinast með krabbamein getur kollvarpað tilverunni. Það þekkja þau sem hafa lent í því. Ríflega eitt þúsund karlmenn fá krabbamein á hverju ári. Mottumars hefst á sunnudaginn en þá er 1 mars. Í ár er athyglinni beint að mikilvægi stuðnings þegar tekist er á við krabbamein. Við fengum til okkar Jón Auðunn Gunnarsson, sem er búinn að vera með krabbamein í rúmlega 10 ár, en hann hefur verið duglegur að ýta við mönnum að vera meðvitaðir um ef eitthvað er öðruvísi í likamanum og láta þá tékka á því. Og eins og ekki síst að ýta við mönnum að ræða um veikindin og sækja sér stuðning. Með honum var Ása Sigríður Þórisdóttir, kynningastjóri hjá Krabbameinsfélaginu.
Og svo eru það reikningarnir og rómantíkin. Viðfengum til okkar konu sem er sannfærð um að það sé hægt að búa sér til rómatískt reikningakvöld og í stað þess að leyfa fjármálunum að vera dulinn skað - og spennuvaldur í sambandinu megi breyta þeim í opinskátt samvinnuverkefni. Þóra Valný Yngvadóttir fjármálaráðgjafi hjá Val og virði er konan.