Flakk

14102021 - FLakk - Flakk um Smárann í Kópavogi - nýtt blokkar hverfi

Árið 1957 keypti Kópavogsbær land Digraness og Kópavogs og gat þá skipulagt það til lengri tíma. Á áratugunum á eftir var hröð uppbygging í innviðum svo sem menntun og heilbrigðis- og félagsþjónustu. Á sama tíma varð mikill vöxtur í ýmiss konar iðnaði og þjónustu í bænum. Í lok 9. áratugarins voru aðalatvinnugreinar í Kópavogi húsgagnaiðnaður, matvælaiðnaður, bifreiðaumboð og almenn verslun. Árið 1958 var lokið við fyrsta skipulagsuppdrátt Kópavogs. Á næstu áratugum voru talsverðar deilur um skipulagsmál í bænum, einkum vegna hraðrar umskiptingar úr sveit í þéttbýli en einnig vegna landadeilna við Reykjavík. Miðbær Kópavogs var hannaður í áföngum á 8. áratugnum og framkvæmdum við Hamraborg var mestu lokið árið 1984.[10] Frá 1990 hefur íbúafjöldi Kópavogs tvöfaldast og stórt verslunar- og þjónustuhverfi risið í Kópavogsdal. Austan Reykjanesbrautar hefur verið mikil uppbygging og þar risið íbúðahverfi kennd við Lindir, Salir, Kórar, Þing og Hvörf. Smáratorg var opnað árið 1997, verslunarmiðstöðin Smáralind árið 2001 og hinn 20 hæða turn á Smáratorgi 3 árið 2008.

Og þá erum við mætt á svæðið sem fjallað verður um í þætti dagsins, og fengið hefur nafnið Smárinn. Rætt verður við Ingva Jónasson framkvæmdastjóra Klasa, en Klasi hefur unnið þróun og uppbyggingu á svæðinu og Helgu Hauksdóttur formann skipulagsráðs Kópavogs. En við byrjum með arkitektunum hluta húsanna, en það eru þau Halldór Eiríksson og Sóley Lilja Brynjarsdóttir hjá Tark og við höldum í Hátúnið

Frumflutt

14. okt. 2021

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Flakk

Flakk

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.

Þættir

,