Flakk

Flakkað um Bræðraborgarstíg - fyrri þáttur

Guðjón Friðriksson sagnfræðingur segir sögu götunnar, gengið frá Vesturgötu Öldugötu. Eldeyjar-Hjalti bjó á númer 8. Sveinn rak flottasta bakarí í bænum á nr. 1 og Jón Sím bakaði á númer 16. Tvö forlög eru við götuna, Forlagið og Bjartur, einnig er útgerðarfélagið Brim við götuna. Brauð, bækur og fiskur.

Rætt við Jóhann Pál Valdimarsson sem hefur rekið sínar bókaútgáfur á tveimur stöðum við götuna á nr. 16 og nr. 7, en hann býr einnig í húsinu og Bræðró er hans staður í lífinu,.

Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brim sem er á nr. 16 gerði húsið upp frá grunni, en mun senn flytja á Fiskislóð. Rætt við hann um skipulag, virðingu fyrir því gamla og gróna og fl.

Frumflutt

27. feb. 2016

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Flakk

Flakk

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.

Þættir

,