Flakk

Flakkað um ólöglegt vinnuafl

Fjallað um ólöglegt vinnuafl á Íslandi. Fyrst heyrðum við af slíku þegar Kárahnjúkar risu, og þá var bæði um ræða brot á kjarasamningum og léglegur aðbúnaður. Með aukningu ferðamanna og uppbyggingu hótela og annars er aftur farið bera á ólöglegu vinnuafli, ungt fólk og útlendingar er helst útsett fyrir slíku. Rætt við fjórar stofnanir sem koma þessum málum. ASÍ, Vinnumalastofnun, Samtök Iðnaðarins og Lögregluna.

Rætt við Halldór Grönvold aðstoðarframkvæmdastjóra og deildarstjóra félagsmáladeildar ASÍ, um aðgerðir hjá verkalýðshreyfingunni og væntanlegt átak í samvinnu við aðra undir yfirskriftinni „Einn réttur ekkert svindl“.

Rætt við Gísla Davíð Karlsson lögfræðing hjá Vinnumálastofnun um aðkomu þeirra ólöglegu vinnuafli, kennitöluflakk, og ráðstefnu í Evrópu sem hann sat nýverið og hvernig mál eru tækluð annars staðar.

Rætt við Almar Guðmundsson framkvæmdastjóra Samtaka Iðnaðarins um þeirra samtök og hvernig þeir bregðast við svindli innan þeirra raða, kennitöluflakk og fl.

Rætt við Öldu Hrönn Jóhannsdóttur aðallögfræðing Lögreglustjóraembættisins á Höfuðborgarsvæðinu um aðkomu lögreglu í slíkum málum, dómsmál og refsiramma.

Frumflutt

13. feb. 2016

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Flakk

Flakk

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.

Þættir

,