Flakk

09122021 - Flakk - Fjallað um Þóri Baldvinsson arkitekt

Þórir Baldvinsson var í senn framúrstefnumaður í arkitektúr og hugsjónamaður í baráttu fyrir bættum húsakosti til sveita. Hann varð fyrstur íslenskra arkitekta til kynna nýjar húsnæðislausnir í anda funksjónalisma og var frumkvöðull í gerð slíkra bygginga hér á landi eins og samvinnuhúsanna svokölluðu við Ásvallagötu í Reykjavík og við Helgamagrastræti á Akureyri. Þar kynnti Þórir fyrstur manna til sögunnar forskölun í húsbyggingum hér á landi. Þórir teiknaði einnig fjölmargar opinberar byggingar; héraðsskóla, kaupfélagshús, samkomuhús og verksmiðjuhús vítt og breitt um landið og þekktar byggingar í Reykjavík eins og Alþýðuhúsið við Hverfisgötu og Mjólkurstöðina við Laugaveg sem hýsir Þjóðskjalasafnið. Helsta starf Þóris var hinsvegar veita Teiknistofu landbúnaðarins forstöðu á árunum 1938-1969. Þáttur hans í nútímavæðingu sveitanna var gríðarstór, bættur húsakostur sem hélst í hendur við vélvæðingu. Hér gefur líta í fyrsta sinn yfirlit verka Þóris ásamt æviágripi hans. Ólafur J. Engilbertsson ritstýrir bókinni en auk hans skrifa greinar Árni Daníel Júlíusson, Jóhannes Þórðarson, Ólafur Mathiesen og Pétur H. Ármannsson sem jafnframt tekur saman verkaskrá Þóris. Úlfur Kolka sér um útlit bókarinnar en hana prýðir fjöldi ljósmynda og teikninga.

Frumflutt

9. des. 2021

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Flakk

Flakk

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.

Þættir

,